Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1968
svg
211,9 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
Opið hús: 25. október 2025 kl. 15:00 til 15:30

Lýsing

Miklaborg kynnir: Mikið endurnýjað og vel skipulagt 211 fm raðhús á þessum eftirsótta stað í Fossvoginum. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 187,4 fm ásamt sérstæðum bílskúr sem er 24,5 fm og er næst húsinu. Húsið er á fjórum pöllum og samanstendur af forstofu, 3.svefnherbergjum (hægt að bæta við 4.herberginu), tveimur baðherbergjum, borðstofu, stofu með útgengi út á svalir, eldhús, sjónvarpsrými með útgengi út á sólpall, fallegan garð, þvottahús og geymslu.

Eignin er vel staðsett þar sem er stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir og Íþróttasvæði Víkings.

*Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 160.750.000 kr*


Bókið einkaskoðun hjá Írisi Örnu, löggiltum fasteignasala í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Gengið er inn í forstofu með ljósum náttúruflísum á gólfi, innfelldur fataskápur og gestasalerni með ljósum flísum og fallegri viðarinnréttingu. Rúmgott eldhús með náttúruflísum á gólfi, sérsmíðaðar innréttingar og Miele tæki. Sigurður Halldórsson arkitekt og Gláma-Kím sáu um hönnun á eldhúsi. Borstofan er næst eldhúsinu. Gengið er upp á efri pallinn inn í rúmgóða stofu með parketi á gólfum, arinn og aukinni lofthæð. Stofan er með útgengi út á suðursvalir með fallegu útsýni yfir fossvogsdal. Á næst neðsta pallinum er sjónvarpsrými sem var samkvæmt teikningum fjórða svefnherbergið með útgengi út á skjólstæðan suðurpall og fallegan garð. Á sama palli er eitt svefnherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi með nýlegri sturtu og sturtugleri. Baðherbergið er með viðarinnréttingu og er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum. Á neðsta palli er rúmgott sérþvottahús með innréttingu og útgengt er úr þvottahúsi að framanverðu, geymsla og stórt svefnherbergi.

Bílskúrinn er staðsettur í bílskúrslengju, enda bílskúrinn næst húsinu og er með hita og rafmagni og rafstýrðri hurð.

Framkvæmdir síðustu ár samkvæmt seljanda:

Flest gler í gluggum hafa verið endurnýjuð á síðasta ári.

Frárennslislagnir fóðraðar 2020.

2013 var skipt um járn á þaki.

Nýtt rafmagn, ofnlagnir endurnýjaðar á efri hæð 2005.


Bókið einkaskoðun hjá Írisi Örnu, löggiltum fasteignasala í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is


Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík