Lýsing
Miklaborg kynnir: Vorbraut 1 - Einstaklega fallegt og vandað sjö íbúða fjölbýlishús á spennandi stað í Hnoðraholti í Garðabæ. Húsið er með einu stigahúsi með lyftu, sérgeymslur á jarðhæð og stæði í bílskýli fylgir öllum íbúðum, bílskúr fylgir tveimur íbúðum. Allar íbúðir eru 3ja herbergja með mismunandi skipulagi, tvær íbúðir á jarðhæð, þrjár á 2.hæð og tvær íbúðir á 3.hæð. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með sérsmíðuðum innréttingum í viðarliti sem ná til lofts frá Arens en án gólfefna, að undanskildum baðherbergjum og þvottahúsum sem skilast með flísum. Gólfsíðir gluggar og gólfhiti í öllum íbúðum. Svalalokun á fyrstu og annari hæð á suð-vestur horni hússins. Húsið stendur ofarlega á hæðinni og margar íbúðir með stórbrotnu útsýni.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Íbúð 301: Glæsileg 3ja herbergja penthouse íbúð á efstu hæð, skráð stærð er samtals 176,4 fermetrar. Þar að auki eru 60,1 fm þaksvalir með stórbrotnu útsýni.
Forstofa/anddyri: Með stórum fataskápum til lofts.
Hjónasvíta: Stór svefnherbergisálma með fataherbergi á gangi, þvottahús og baðherbergi. Fallegt útsýni úr herberginu, útgengt á stórar þaksvalir sem umlykja íbúðina.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum til lofts.
Alrými: Stórt og opið rými með eldhúsi og stórri stofu. Eldhúsið skilast með vönduðum tækjum frá AEG, stór eldhúseyja með helluborði. Gólfsíðir gluggar á þrjá vegu hleypa mikilli birtu í rýmið. Útgengt á stórar þaksvalir.
Baðherbergi: Tvö baðherbergi, annað inn af forstofu og hitt í hjónasvítu. Fallegar flísar á gólfi og veggjum að hluta til. Vegghengd salernisskál, walk-in sturta, handlaug felld ofan í borðplötu. Tvær handlaugar innan hjónasvítu og gluggi með opnanlegu fagi.
Þvottahús: Staðsett innan hjónasvítu. Fallegar flísar á gólfi og veggjum að hluta til, vaskaðstaða og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla: 3,8 fermetra sérgeymsla á jarðhæð hússins fylgir.
Bílastæði: Sérmerkt stæði í bílageymslu á baklóð hússins fylgir.
Bílskúr: 27,3 fm bílskúr á jarðhæð hússins fylgir, keyrt inn að aftanverðu húsinu.
Hnoðraholt er spennandi og vaxandi hverfi á góðum stað innan höfuðborgarsvæðisins nálægt helstu stofnbrautum. Stutt í náttúruna, Vífilstaði, Heiðmörk og góða golfvelli, íþróttahúsið Miðgarð, Smáralind og skóla.
Allar nánari upplýsingar veita:
Gabriel Máni Hallsson lögg. fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is
Kjartan Ísak Guðmundsson lögg. fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason lögg. fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is