Upplýsingar
116,4 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Fasteignamarkaðurinn ehf. sími 570-4500 kynnir til sölu glæsilega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 2. hæð, íbúð 0202, í 6. hæða nýbyggðu lyftuhúsi á frábærum stað við Bolholt 7-9 Reykjavík. Íbúðin er 116,4 fermetrar þar af er geymsla 6,1 fermetrar. Bílastæði í upphituðum bílakjallara merkt B-7 fylgir eigninni.
Íbúðirnar í Bolholti 7-9 sem er vandað álklætt lyftuhús á Valhallareitnum eru allar með vönduðum íslenskum innréttingum frá Axis ásamt AEG eldhústækjum. Íbúðirnar afhendast án gólfefna nema í votrýmum þ.e. baðherbergi og þvottahúsi. Gólfhiti er í öllum íbúðum og lyfta er í húsinu ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu. Bílastæði í upphituðum bílakjallara fylgja flestum íbúðum og auk bílakjallara verða 49 bílastæði á sameiginlegri lóð. Það verða 47 íbúðir í húsinu auk verslunarrýmis.
Allar nánari upplýsingar og tímapantanir á skoðun íbúða í húsinu er að fá á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
Frekari upplýsingar má finna í skilalýsingu Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf., sem má nálgast hjá fasteignasala.
Áætlaður afhendingartími
Bolholt 9 verður afhent í febrúar 2026 en Bolholt 7 verður afhent í mars 2026.
1. Frágangur íbúða innanhúss.
1.1. Gólfefni. Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og í þvottahúsi.
1.2. Veggir. Útveggir íbúðarinnar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af hvítri akrýlmálningu, gljástig 5 eða sambærilegt. Á baðherbergi og í þvottahúsi eru veggir málaðir með viðurkenndri votrýmismálningu.
1.3. Loft. Steypt loft eru slípuð, og slétt sandspörtluð. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af hvítri plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Loft á baðherbergi og í þvottahúsi er málað með viðurkenndri votrýmismálningu. Í ákveðnum íbúðum eru loft klædd gipsplötum, grunnuð, spörsluð og máluð með tveimur yfirferðum af hvítri plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Á völdum stöðum í ákveðnum íbúðum á 4-6. hæð eru loft niðurtekin með hljóðdúk.
1.4. Gler. Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum BYKO glerframleiðanda. Við afhendingu íbúðar yfirtekur/taka kaupandi/kaupendur ábyrgð framleiðanda.
1.5. Sólbekkir. Sólbekkir verða þar sem við á úr plastlögðum spónaplötum.
1.6. Hurðir. Inngangshurð EI30-CS inn í íbúðina verður spónlögð. Innihurðar eru yfirfelldar, sléttar og sprautulakkaðar hvítar. Inngangshurðir inn í íbúðir og innihurðir eru frá Parka.
1.7. Fataskápar. Fataskápar eru í forstofu og í svefnherbergjum. Í sumum hjónaherbergjum eru fataherbergi ýmist með rennihurðum og/eða hefðbundnum skápahurðum. Innréttingar verða úr ljósu Melamin efni og koma frá Axis.
1.8. Eldhús. Eldhúsinnrétting verður úr ljósu Melamin efni og kemur frá Axis. Borðplötur verða plastlagðar og koma þær einnig frá Axis. Eldhúsvaskur og blöndunartæki frá Tengi fylgja, ásamt helluborði með gufugleypi eða helluborði með innbyggðum gufugleypi þar sem við á. Einnig mun fylgja ofn með blæstri, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti og innbyggður kæliskápur með frysti. Raftæki sem fylgja koma frá Ormsson.
1.9. Baðherbergi. Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft, flísar koma frá Parka. Baðherbergis innrétting verður úr ljósu Melamin efni og kemur frá Axis. Borðplötur verða plastlagðar og koma þær einnig frá Axis. Á baðherbergi verða ýmist speglaskápar eða speglar eftir því sem við á. Gert er ráð fyrir niðurfalli í gólfi. Handlaug, handlaugartæki og handklæðaofnar fylga þar sem við á ásamt innbyggðu, upphengdu salerni með hæglokandi setu og innbyggt sturtutæki verður í sturtu. Baðherbergis tæki koma frá Tengi. Sturtubotn verður flísalagður. Gert er ráð fyrir sturtuhlið eða sturtuklefa úr gleri eftir því sem við á eða innangengt sturturými eftir því sem við á.
1.10. Þvottahús. Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innrétting verður úr hvítu Melamin efni og kemur frá Axis. Borðplötur verða plastlagðar með ræstivask og blöndunartæki frá Tengi. Ekki eru ræstivaskar í þeim íbúðum sem eru með sameiginlegt bað og þvottahús. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara. Gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara. Veggir eru grunnaðir og málaði með hvítri viðurkenndri votrýmis málningu.
1.11. Sérgeymsla. Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð eða lögð epoxy efni þar sem við á. Skilveggir á milli geymslna eru ýmist, steyptir, hlaðnir eða með timburgrind og málaðri plötuklæðningu. Geymslu gangar verða ýmist málaðir eða lagðir epoxy efni. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.
1.12. Hitakerfi. Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi skv. teikningum. Gólfhita- og ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða hitastýrðir lokar á því.
1.13. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir. Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.
1.14. Rafmagns- og sjónvarpslagnir. Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Loftnetstengill verður í alrými ásamt tölvutengli. Tölvutenglar verða í herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu. Innfelld lýsing í alrými ( stofu og eldhúsi) er með dimmum.
2. Frágangur sameignar.
2.1. Anddyri og stigahús. Steyptir innveggir í sameign og geymslum eru hreinsaðir og málaðir. Sameign á hverri íbúðarhæð og stigagangur eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir tveimur yfirferðum af ljósri plastmálningu. Anddyri er flísalagt með uppsettum póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigar og stigapallar eru teppalagðir en það er gert nokkru eftir að íbúðareigendur hafa flutt inn. Stigahlaup að kjallara er flísalagt og brunastúkur. Á stigum og pöllum eru uppsett handrið. Raflögn í sameign fylgir frágengin með ljósakúplum þar sem venja er að hafa þá ásamt lýsingu í lofti þar sem við á. Loftræsilagnir eru lagðar samkvæmt teikningum.
2.2. Hurðir. Allar útihurðar fylgja frágengnar. Aðalhurð er úr áli. Innri anddyrishurðir er úr áli með mótorknúinni hurðarpumpu þar sem við á. Hurðir frá bílgeymslu gegnum brunastúkur verða með rafmagnsopnun.
2.3. Lyftur. Fólkslyftur frá Schindler eru í hvoru stigahúsi og verða tilbúnar til notkunar við afhendingu
2.4. Lokað bílageymsluhús. Bílageymsla er í kjallara hússins með máluðu loft og fermacell klæðningu þar sem við á. Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á. Þeir eru hreinsaðir og slípaðir að innanverðu og málaðir. Hitablásar og loftræsikerfi fylgir frágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð í bílageymslu fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæði. Rafmagnstengill fylgir hverju stæði.
2.5. Hjóla- og vagnageymslur. Steyptir innveggir í hjóla- og vagnageymslu eru hreinsaðir, slípaðir og málaðir. Gólf verða slípuð lögð epoxy efni.
2.6. Sorpgeymslur. Veggir eru með múrfiltun og málaðir. Gólf eru slípuð og lögð epoxy.
3. Frágangur utanhúss.
3.1. Klæðning og einangrun. Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á og álklætt að mestu að utan. Kjallaraveggir eru múraðir á einangrun og veggir 1. hæðar að hluta með flísaklæðningu. Sprungur geta myndast á yfirborði múrveggja sem verða ekki meðhöndlaðar frekar.
3.2. Steypt þak. Þakplata er staðsteypt eða úr forsteyptum holplötum þar sem við á með vatnshalla að niðurföllum. Ofaná steypta plötu kemur tvöfalt lag af eldsoðnum tjörupappa og 5 mm takkadúk. Einangrun er 200 mm rakaþolin þrýstieinangrun. Ofan á einangrun kemur vatnsvarnardúkur með öndun, einangrun er fergd með sjávarmöl/völusteinum. Niðurföll eru tengd regnvatnslögnum.
3.3. Svalir. Svalagólf eru steypt, slípuð og múrfíltuð eftir því sem við á. Á þaksvölum eru svalir hellulagðar ofan á einangrun. Svalahandrið eru úr áli og gleri. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. Svalaloft eru slípuð, grunnuð og máluð.
3.4. Svalalokun. Möguleiki er á svalalokun samkvæmt aðalteikningum arkitekts. Sjá nánar á aðalteikningum.
3.5. Gluggar. Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá BYKO. Opnanleg gluggafög fylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.
3.6. Lóð. Lóð verður fullfrágenginn samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Bílastæði eru hellulögð og akbraut malbikuð.
4. Hönnuðir.
Arkitekt: THG ARKITEKTAR. Verkfræðihönnun: VEKTOR – hönnun og ráðgjöf. Raflagnahönnun: Tesla ehf. Lóðarhönnun: Landslag ehf.
5. Teikningar.
Í kaupsamningi kemur fram hvaða teikningar arkitekts eru í gildi á þeim tíma þegar kaupsamningur er gerður. Á byggingartíma hússins áskilur byggingarfélagið sér rétt til að breyta þessum teikningum í samráði við arkitekt vegna tæknilegra úrfærslna sem upp geta komið upp á meðan framkvæmd stendur. Teikningar annarra hönnuða geta líka breyst vegna tæknilegra útfærslna og/eða breytinga vegna búnaðar sem síðar er valinn inn í eða utan á húsið.
6. Byggingaraðili. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. Byggingarstjóri Bygg, Atli Geir Gunnarsson Atli@bygg.is. Verkefnastjóri Bygg, Skarphéðinn Njálsson Skarphedinn@bygg.is. Frekari upplýsingar um efnisval og önnur mál má nálgast hjá verkefnastjóra Byggingarfélagins.
7. Áætlaður afhendingartími.
Áætlað er að íbúðir við Bolholt 7-9 verði afhentar á tímabilinu febrúar 2026 – mars 2026. Bolholt 7 verður afhent í mars 2026 og Bolholt 9 verður afhent í febrúar 2026. Sameign, lóð og bílageymsla verður afhent samhliða afhendingu síðustu íbúða í Bolholti 7.
Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda hefur áhrif á afhendingartíma til seinkunnar. Allar breytingar sem kaupendur hafa huga á að gera þarf að gera í samráði við verkefnastjóra skriflega og mun hann meta hvort þær séu framkvæmanlegar. Íbúðareigandi er sjálfur ábyrgur fyrir því að bæði söluaðilar efnis ásamt verkefnastjóra byggingarfélagissins séu upplýstir um allar breytingar með pósti. Íbúðareigandi er sjálfur ábyrgur vegna viðbótarkostnaðar sem getur myndast hjá byggingarfélaginu vegna þessara breytinga. Byggingarfélagið tekur ekki á sig ábyrgð vegna skemmda sem kunna að verða á búnaði eða efnum sem íbúðareigandi hefur sjálfur sett inn í íbúðina áður en formleg afhending hefur farið fram.
8. Mikilvægar upplýsingar til kaupenda við afhendingu.
Í nýjum íbúðum er mikill byggingaraki í steypuvirkinu. Þessi raki mun hverfa á einu til tveimur árum að mestu en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt gluggann, gólfefni, málningu og spörslun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna.
Aðalhurðir á hverju stigahúsi svo og bílageymsluhurðir verður að fylgjast vel með og umgangast þannig að engar þvinganir verði við umgang þeirra. Reglulegt viðhald hurðanna er nauðsynlegt.
Þar sem minnst er á gerð tækja í innréttingum í skilalýsingu er átt við tæki af sambærilegri gerð og gæðum. Sama á við um birgja og efnissala. Seljandi áskilur sér rétt til breytinga á byggingartímanum en er þá miðað við sambærilega vöru.
Íbúðareigandi þarf að hreinsa sigti á blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í íbúðina og fylgjast með niðurföllum í þvottahúsi, baði og úti á svölum.
Nauðsynlegt er að bera sílan efni á svalagólf á 2-3 ára fresti.
Varast ber að setja plastfilmu eða merkingu á gler eða setja gardínur þétt að gleri vegna rakamyndunar og sprunguhættu.
Nauðsynlegt er að smyrja lamir á opnanlegum fögum og svalahurðum svo þau festist ekki.
Ekki má setja heita potta eða pönnur beint ofan á borðplötur.
9. Til áréttingar frá seljanda.
Seljandi áskilur sér rétt til að láta breyta teikningum á byggingartímanum í samráði við arkitekta og hönnuði að fengnu samþykki byggingaryfirvalda sé þess þörf vegna tæknilegra útfærslna.
Minniháttar misræmi getur verið á milli teikninga arkitekta, söluteikninga og sérteikninga innréttinga.
Seljandi áskilur sér allan rétt til þess að gera efnis-, tæknilegar- og útlitsbreytingar á meðan á byggingarframkvæmdum stendur.
Við afhendingu skal kaupandi skoða íbúðina ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi, áður en hann hefur framkvæmdir í íbúðinni, afhenda fulltrúa BYGG undirritað eyðublað þar sem þessir ágallar eru taldir upp og skal byggingaraðili lagfæra þau atriði eins fljótt og auðið er. Eins eru allar íbúðir yfirfarðar u.þ.b. ári eftir sölu og ef eitthvað þykir ábótavant í þeirri yfirferð og fellur ekki undir eðlilegt viðhald fasteigna skal það lagfært eins fljótt og auðið er.
Við lögn á gólfefnum skal íbúðareigandi yfirfara gólfflöt og ganga úr skugga um að engar misfellur séu til staðar, ef íbúðareigandi verður var við misfellur á gólfflöt íbúðarinnar skal hann koma þeim ábendingum til verkstjóra eða verkefnasjóra BYGG áður en gólfefni eru lögð. Einnig er mælst til með að sett sé fjaðrandi þéttiefni í fúgu á milli gólfefna og veggja. Neðan á gólflista ofan á parket er mælst til með að setja fjaðrandi gúmmíborða. Fylgja skal fyrirmælum efnissala við frágang gólfefna.
Í íbúðinni er anhydrít gólf ílögn með gólfhita og verður því að nota varmaleiðandi dúk undir gólfefni þar sem við á. Í gólfinu getur verið töluverður raki og þá er nauðsynlegt að rakagrunna gólfið áður en niðurlímt gegnheilt parket er lagt á gólf ílögnina.
Þegar niðurlímt parket er lagt skal ekki líma niður dúk eða parket undir gólfsíðum gluggum eða þar sem anhydrít slítur sig frá veggjum sökum hljóðleiðni.
Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í múr, steypu og timbri og/eða öðrum atriðum sem heyra undir eðlilegt viðhald hússins og almenna umhirðu.
Hafi kaupandi einhver umkvörtunarefni fram að færa vegna hinnar seldu íbúðar, skal hann strax beina umkvörtun sinni til verkefnastjóra og/eða verkstjóra hússins.
Íbúðarkaupendur gera sér grein fyrir að í sérgeymslum og öðrum geymslum geta verið lagnir í loftum og á veggjum sem nauðsynlegar eru vegna lagnaleiða hússins.
Kaupandi ber ábyrgð á lóð hússins frá lokaúttekt, þ.m.t. gróðri.
Skilalýsing þessi er hluti af kaupsamningi.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Forsendur söluyfirlits:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.