Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og falleg 86,4 m2, 3ja herbergja íbúð með aukinni lofthæð á 3ju og efstu hæð ásamt bílastæði í lokaðri bílageymslu í lyftuhúsi við Vefarastræti 8 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 86,4 m2, þar af íbúð 78,7 m2 og geymsla 7,7 m2. Eignin skiptist í forstofuhol, stofu, eldhús og borðstofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi/þvottaherbergi. Sérgeymsla er í sameign í kjallara. Bílastæði í bílageymslu fylgir eigninni og búið að leggja rafmagn að stæðum fyrir hleðslustöð. Gott skipulag, vandaðar innréttingar og innfelld lýsing hönnuð af Lúmex. Mikil lofthæð í alrými sem gerir eignina bjarta og skemmtilega. Svalir í suðurátt með fallegu útsýni. Frábær staðsetning rétt við grunnskóla, leiksskóla og fallegar gönguleiðir. Stutt í næstu strætóstoppistöð. Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Forstofuhol með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu rými með harðparketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg L-laga innrétting með blástursofni, helluborði og háf. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Í stofu er mikil lofthæð sem gerir rýmið bjart og fallegt. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt með fallegu útsýni.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi/þvottaherbergi er flísalagt, með innréttingu, upphengdu salerni og 'walk in' sturtu. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara, skráð 7,7 m2.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni, merkt B32. Búið að leggja rafmagn að stæði fyrir hleðslustöð.
Hjóla og vagnageymsla er í sameign.
Sameiginleg bílastæði eru 41 fyrir framan og aftan við hús. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla hefur verið sett upp aftan við hús.
Húsið: Húsið er staðsteypt, klætt báruáli frá Áltak. Innsteypt innfelld lýsing er undir svölum. Hiti undir steyptri stétt. Rafmagnsopnari í anddyrum, póstkassar og mynddyrasími. Teppa- og flísalögð sameign. Lýsing frá Lumex í sameign. Hljóðplötur í sameign til að dempa hljóð utan íbúðar.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 70.800.000 kr.
Verð kr. 74.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.