Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2007
213,2 m²
6 herb.
1 baðherb.
5 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Lýsing
*** SELJUSKÓGAR 18 - 300 AKRANESI ***
OPIÐ HÚS: Eignin verður sýnd fimmtudaginn 23. október 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
PRIMA FASTEIGNASALA og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: Fallegt, vandað og vel skipulagt 6 herbergja 213,2 fm einbýlishús á Akranesi. Samkvæmt birtu fm er íbúðarhlutinn 187,5 fm og innandgengum bílskúr 25,7 fm samtals 213,2 fm. Fyrir framan hús er malarplan. Fyrir aftan hús er gróinn garður ásamt stórum og sólríkum suðursólpalli með heitum potti og góðum geymsluskúr. Gólfhiti með stýringum þ.s eru sérhitastillar í hverju rými. Mjög góð lofthæð í alrými og eru stórir gluggar sem gerir rýmið mjög bjart og skemmtilegt.
Húsið er kanadískt timburhús með steyptri gólfplötu. Mjög góð staðsetning í fjölskylduvænu hverfi þ.s er m.a stutt í leikskóla og á Golfvöll Leynis.
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLIT
SJÁ MYNDBAND AF EIGN (VIDEO)
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Forstofuherbergi er rúmgott með vinylparketi á gólfi og fataskáp.
Hol með vinylparketi.
Stofa er í alrými og rúmgóð og björt með góðri lofthæð. Úr stofu er útgengt á stóran og sólríkan suðursólpall (ATH. seljendur hafa nánast ekkert notað hurðina). Hljóðvistarklæðning alrými og sjónvarpsinnrétting fylgir með eigninni.
Borðstofa er björt og innaf eldhúsi með vinylparketi. Útgengt er á stóran og sólríkan sólpall með heitum potti og 15 fm geymsluskúr.
Eldhús er með vinylparketi á gólfi og stórri og góðri innréttingu sem er nýlega endurnýjuð að hluta. Tvöfaldur bakaraofn í vinnuhæð, span helluborð.
Gangur er með nýlegu vinylparketi á gólfi og stórum fataskáp.
Hjónaherbergi er rúmgott með nýlegu vinylparketi á gólfi.
Svefnherbergin 3 eru öll rúmgóð með nýlegu vinylparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og veggjum. Hornbaðkar, sturta, upph.wc og handklæða ofn. Tveir opnanlegir gluggar.
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu.
Bílskúr innangengt úr íbúð. Heitt og kalt vatn.
Samkvæmt upplýsingum frá seljendum hafa eftirfarandi framkvæmdir verið gerðar á sl árum: 2019 var alrými gifsað og málað, 2020 sólpallur, heitur pottur, 15 fm garðhýsi.Gluggar yfirfarðir og skipt út lömum þ.s það þurfti. Aukalamir fylgja með. 2021 skápur og gólfefni á forstofu, hvít álklæðning á þakkant, þakennur og niðurföll og timbur á hornum málað. 2022 gróðursett tré á lóð og útbúið malarbílastæði að austanverðu. 2023 Innrétting í þvottahúsi ásamt vaski og blöndunartækjum. Vinyl parket sett á alrými, eldhús og svefnherbergi. Naglar á þaki ryðhreinsaðir og sett epoxy ryðvörn þ.a þakið er tilbúið til málunar. 2024 hluti af skápum í eldhúsi endurnýjaðir, borðplata með vaski sem er steyptur í, framhliðar á skápum og spanhelluborð. Framhlið fyrir innfellda uppþvottavél fylgir með. Nýmálað þak (2025).
Falleg og fjölskylduvæn eign á Akranesi þ.s stutt er í fallega náttúru í nágrenninu.
Möguleiki er á skiptum á 4 herbergja íbúð á Akranesi eða í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir:
Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s. 787 3505 / oliver@primafasteignir.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. sep. 2019
62.150.000 kr.
59.900.000 kr.
213.2 m²
280.957 kr.
30. mar. 2010
21.400.000 kr.
19.500.000 kr.
213.2 m²
91.463 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025