Lýsing
Um er að ræða nýja og vandaða 3ja herbergja íbúð á 2 hæð með sérinngang. Birt stærð séreignar er 70,5 fermetrar og þar af er 6,7 fermetra sérgeymsla í sameign. Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af bílastæði á lóð. Frábær staðsetning miðsvæðis í Þorlákshöfn Ölfusi, stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Íbúðin skiptist í anddyri, í alrými er eldhús og stofa / borðstofa, 2 svefnherbergi, baðherbergi / þvottahús og geymslu. Útgengi er úr stofu út á vestur svalir.
Nánari lýsing:
Anddyri: Með góðum góðum fataskápum, flísar á gólfi.
Stofa: Í alrými með eldhúsi, útgengt er út á vestur svalir, parket á gólfi.
Eldhús: Með Svansvottaðri HTH innréttingu, Melamine filma er á eldhúsinnréttingu á neðri skápum og háum skápum, skúffur með mjúklokun, hvítar vegghillur, parket á gólfi. Heimilistæki eru vönduð af AEG gerð þ.e. spanhelluborð og bakaraofn með sjálfhreinsikerfi. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Stálvaskur með einnar handar blöndunartæki.
Hjónaherbergi: Rúmgott með hvítum HTH fataskápum, parket á gólfi
Svefnherbergi: Gott með hvítum HTH fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi / þvottaherbergi: Með fallegri baðinnrétting með handlaug í borði, walk in sturta með 30x60 flísum, upphengt salerni, handklæðaofn, flísalagt gólf og hluta veggja. Innrétting og tengi fyrir þvottavélar og þurrkara.
Sérgeymsla: 6,7 fm sérgeymsla er í sameiginlegu geymslurými á efri hæð hússins.
Bílastæði: Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af einu bílastæði á sameiginlegri bílastæðalóð. Lagnaleið fyrir rafhleðslustöðvar liggur í stæðið og er komin staur fyrir rafhleðslustöð.
Nánar um húsið og eignirnar: Klettamói 9 er átta íbúða tvílyft hús. Á hvorri hæð eru fjórar íbúðir og geymslur eru staðsettar á í sameiginlegu tæknirými á hæðinni. Allir útveggir ásamt berandi innveggjum og milligólf eru staðsteypt. Gólfplötur milli íbúða eru staðsteyptar einnig eru stigar, svalir og svalagangar staðsteypt eða steypueiningar með endanlegu yfirborði. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með smábáru og sléttri málmklæðningu að hluta. Þak er viðsnúið með pvc dúk. Gluggar og svalahurðar eru timbur/álkerfi, glerjaðir með tvöföldu K-gleri. Útihurðar og geymsluhurðar eru massífar timburhurðar. Svala og stigahandrið er galvaníserað stálhandrið með lóðréttum pílárum. Lýsing er á svalagöngum og svölum. Innveggir íbúða eru sandsparstlaðir, grunnaðir og málaðir. Léttir innveggir eru úr gifsi á stálgrind, sandsparstlaðir og málaðir. Loft íbúða verða sandspörsluð, grunnuð og máluð.
Innréttingar: Allar innréttingar eru vandaðar HTH innréttingar og er um Svansvottaða framleiðslu á þeim að ræða. Ljós mokkalit melamine filma er á eldhúsum, böðum, þvottahúsum og forstofuskápum. Fataskápar svefnherbergja sprautulakkaðir hvítir. Fataskápur er í forstofu, hjónaherbergi og barnaherbergjum ná upp í loft með aðfellu. Innvols innréttinga og fataskápa er hvítt. Eldhúsinnrétting er með harðplastlagðri borðplötu. Skúffur eru með mjúklokun. er innbyggður í innréttingu. Led lýsing er undir efri skápum. Innihurðar eru yfirfelldar plastlagðar hvítar hurðar með hurðarhúnum úr stáli. Heimilistæki eru að viðurkenndri gerð, AEG frá Ormsson þ.e. spanhelluborð og bakaraofn með sjálfhreinsikerfi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Í eldhúsi er eldhúsvaskur með blöndunartæki. Hreinlætistæki eru að viðurkenndri gerð. Á baðherbergi er vegghengt salerni. Baðinnrétting með handlaug og blöndunartæki, handklæðaofnar. Blöndunartæki í sturtu eru utanáliggjandi sturtutæki. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Lóðin: Gangstétt framan við húsið er hellulögð og með , aðrir hlutar lóðar verða þökulagðir. Eitt bílastæði fylgir hverri íbúða auk gestastæða framan við húsið. Á milli húsanna er leikvöllur og þökulagt svæði.
Staðsetning: Smellið hér.
Frábær nýleg eign - Tilvalin fyrstu kaup - Mjög góð staðsetning miðsvæðis í Þorlákshöfn - Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.