Lýsing
Miklaborg kynnir: Glæsileg 133,6 fm 4ra herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli með sérinngangi, vel skipulögð, aukin lofthæð, hljóðdúkur í lofti í alrými, innfelld lýsing, vandaðar innéttingar frá Voke3. Afhendist fullbúið með gólfefnum, hiti í gólfi. Um er að ræða nýbyggt fjórbýli sem er tilbúið til afhendingar. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með litaðri álklæðningu, gluggar og hurðir eru úr áli/tré og þak klætt með tvöföldum tjörudúk.
Staðsetning er einstaklega góð í rólegu hverfi rétt við skóla og leiksskóla.
Bókaðu skoðun hjá sölumönnum.
NÁNARI LÝSING:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með tvöföldum fataskáp. barnaherbergin eru tvö, bæði með fataskápum. Hjónaherbergi rúmgott með skápum sem ná upp í loft. Baðherbergi með góðri innréttingu, upphengdu salerni, walk-in sturta með innbyggðum tækjum, flísalagt gólf og veggir að hluta. Eldhús er í alrými ásamt stofu og borðstofu. Eldhús er með fallegri innréttingu og góðri vinnueyju, helluborð er í eyju. Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Stofan er rúmgóð, stórir gluggar eru í rýminu sem veita mika birtu. Úr borðstofu er útgengt út á góða verönd. Þvottahús og geymsla eru í sama rými innan íbúðar, góð innrétting með vaski og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt er út á framlóð og baklóð. . Bílastæði með staur fyrir rafhleðslu fylgir eigninni.
GÓLFEFNI: Fallegt harðparket á öllum gólfum nema flísar á anddyri, baðherbergi og þvotthúsi/geymslu.
Virkilega vönduð, björt og falleg eign á rólegum og góðum stað á Selfossi.
ATH myndir sýna skipulag íbúðarinnar en eru ekki teknar í þessari íbúð.
Allar nánari upplýsingar veita:
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691 2312 eða osa@miklaborg.is
Bára Gunnlaugsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899 8809 eða bara@miklaborg.is