Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Lilja Guðmundsdóttir
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Kári Sighvatsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2001
svg
200,4 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 27. október 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús mánudaginn 27. október milli kl. 17:00 og 17:30

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

**Opið hús mánudaginn 27. október milli kl. 17:00 og 17:30**

Glæsilegt 200,4m² fimm herbergja raðhús á þremur pöllum á einstökum útsýnisstað í Reykjavík. Mikil lofthæð í stofu ásamt stórum gólfsíðum gluggum. Einstök eign innst í botnlanga við sjávarsíðuna í Grafarvogi. Húsalengjan stendur vestast í Staðahverfinu með óskertu útsýni til vesturs. Frá stofu er gengið út á verönd, af verönd í mólendi og þaðan á Korpúlfsstaðavöll og niður í fjöru.


Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 200,4m² Fyrirhugað fasteignamat næsta árs er kr. 144.150.000
Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápar.
Herbergi I: Rúmgott, parket á gólfi og góðir fataskápar.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum í kringum stórt flísalagt baðkar, innnbyggð sturtutæki, handklæðaofn, vegghengt salerni, innrétting með tveimur handlaugum og góðu skúffuplássi.
Stofa: Parket á gólfi, mikil loftæð með innfelldri lýsingu að hluta, ofnar í gólfi við glugga, gólfsíðir gluggar, gengið um rennihurð út á viðarpall til vesturs, glæsilegt sjávarútsýni yfir Leiruvoginn. Við stofuenda er stór arinn. 
Eldhús: Gott skúffu og skápaplass, dökkar flísar á vegg milli efri og neðri skápa og aftan við gashelluborð, tvöfaldur ísskápur, uppþvottavél og bakarofn sem er í vinnuhæð.
Borðstofa: Við hliðina á eldhúsi er rúmgóð og björt borðstofa, innbyggðir skápar í vegg.
Herbergi II: Ágætt parketlagt herbergi, glæsilegt sjávarútsýni úr herbergisgluggum. Hurð sem liggur út á pall.
Herbergi III: Gengið er upp tröppur úr forstofu yfir brú sem liggur yfir hluta stofunnar. Þar er ágætt parketlagt herbergi, fataskápur, fallegt sjávarútsýni úr gluggum.
Kjallari: Gengið niður tröppur frá stofu. Í kjallara er rúmgóð geymsla, þvottahús, baðherbergi með sturtu og inntaksrými.

Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík