Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og rúmgóð 104,6 m2, 4ra herbergja endaíbúð með sérinngangi á jarðhæð við Goðaborgir 1 í Grafarvogi. Stór timburverönd og afgirtur garður í suðvesturátt. Mjög fallegt útsýni er frá íbúðinni. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, hol/gang, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla er í sameign. Eignin er skráð 104,6 m2, þar af íbúð 100,6 m2 og geymsla 4 m2.
Framkvæmdir/endurbætur sem farið hefur verið í samkvæmt seljanda: Baðherbergið var gert upp árið 2017. Pallur og skjólgirðin var sett upp árið 2018. Parket og innihurðar árið 2024, innihurðar eru allar 90 cm að breydd. Flestir fataskápar endurnýjaðir árið 2025.
Árið 2019 voru múrviðgerðir gerðar á húsinu að utan. Árið 2020 var framhlið hússins máluð, ásamt gluggum. Árið 2020 voru rennur og niðurfallsrör endurnýjuð. Árið 2025 var bakhlið hússins máluð, ásamt gluggum. Árið 2025 voru útidyrahurðir pússaðar og bæsaðar.
Goðaborgir 1 er vel staðsett eign þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, eins og t.d. skóla, leikskóla, verslanir, sund, líkamsrækt, heilsugæslu.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Hol/gangur er með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stóra timburverönd og afgirtan garð í suðvesturátt.
Eldhús er með hvítri innréttingu og borðkrók. Í innréttingu er helluborð, vifta og blástursofn. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Gluggar með fallegu útsýni eru við borðkrókinn sem gera rýmið bjart og skemmtilegt.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, vegghengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Gluggi er á baðherbergi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Sérgeymsla skráð 4 m2 er í sameign hússins.
Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er 76.800.000 kr.
Verð kr. 82.900.000
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.