Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Diðrik Stefánsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
einbýlishús

Hlíðarvegur 10

200 Kópavogur

134.900.000 kr.

611.514 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2062139

Fasteignamat

131.200.000 kr.

Brunabótamat

95.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1953
svg
220,6 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir 220,6 m2 einbýlishús ásamt bílskúr við Hlíðarveg 10 á frábærum útsýnisstað í Suðurhlíðum Kópavogs. Húsið er á vinsælum og rótgrónum stað. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 184,6 m2 auk 36 m2 bílskúrs. 

Efri hæðin skiptist í forstofu, gestasalerni, eldhús, stofu, borðstofu, arinstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, og kjallari skiptist í herbergi, geymslu og þvottahús.
 
* Þakið var endurnýjað á húsi og bílskúr árið 2020. 

 
Stór og skjólsæll suðurgarður er við húsið sem er staðsett ofan við Hlíðargarð. Frá húsinu er því óhindrað útsýni.

 
Nánari lýsing eignar:
Forstofan er rúmgóð með innbyggðum fataskáp með rennihurðum. Gólfhiti.
Gestasalerni með flísalögðu gólfi, salerni og vaski.
Eldhúsið er mjög rúmgott með fallegri innréttingu á tvo vegu með miklu skápaplássi og gleri á milli skápa, innbyggð uppþvottavél, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Flísalagt gólf með hita í gólfi, helluborð með viftuháf yfir. Borðkrókur með áföstu háu eldhúsborði, útgengi út í garð.
Stofan/borðstofa er björt og falleg með parketi á gólfi, gólfsíðir gluggar sem gefa fallega birtu í rýmið, útgengi út í garð sem snýr til suðurs.
Arinstofa með parketi á gólfi og fallegum arni, steyptur sérsmíðaður stór sófi. 
Svefnherbergisgangur með flísalögðu gólfi og gólfhita.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og innbyggðum fataskáp með rennihurðum.
Barnaherbergin eru tvö með parketi á gólfi og innbyggðum eldri fataskápum.
Baðherbergi flísalagt með baðkari, salerni, vaski og skáp.
Bílskúrinn er rúmgóður. Steypt gólf, en ófrágengið. Skúrinn er einangraður að hluta og í honum rafmagn en hann er ekki upphitaður og ótengdur vatnslögnum."
 
 Kjallari:
Steyptur stigi

Gangur með flísalögðu gólfi. Útgengi út í garð.
Herbergi með máluðu gólfi, opnanlegur gluggi.
Geymsla með dúk á gólfi.
Þvottahús er flísalagt.
 
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

 

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone