Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
110,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Helluvað 7 í Norðlingaholti,  4ra herbergja endaíbúð með glæsilegu útsýni á 4. hæð, ásamt bílastæði í lokaðri bílageymslu í lyftuhúsi. Stórar yfirbyggðar svalir.

Eignin er til sölu í skiptum fyrir stærri eign miðsvæðis í Reykjavík. Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson, fasteignasali, finnbogi@heimili.is


Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í kjallara. Yfirbyggðar suðursvalir með fallegu útsýni. Eignin er skráð 110,8 m2, þar af íbúð 100 m2, geymsla 10,8 m2. Bílastæði merkt B19 í bílageymslu fylgir eigninni.
Nánari lýsing:
Komið er inn á forstofugang með fataskáp og parketi á gólfi. Á gangi eru þrjú svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi. Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu. Flísalagt baðherbergi með innréttingu og baðkari. Af gangi er komið inn í bjart opið rými sem skiptist í eldhús á vinstri hönd og stofu og borðstofu á hægri hönd. Í eldhúsi er L-laga innrétting með granít borðplötu.  Úr stofu er gengið út á rúmgóðar yfirbyggðar svalir með fallegu útsýni í suðurátt. Í kjallara er sérgeymsla með hillum og sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Í bílageymslu er sameiginlegt þvottaplan.

Afar stutt er í miðju hverfisins þar sem eru tveir leikskólar og grunnskóli. Einnig er stutt í íþróttaiðkun og Bónus lágvöruverlsun. Hjóla- og göngustígar eru í allar áttir út úr hverfinu og öryggi vegfarenda haft að leiðarljósi með undirgöngum og göngubrú.


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Finnbogi Hilmarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Finnbogi Hilmarsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. nóv. 2007
24.430.000 kr.
29.700.000 kr.
110.8 m²
268.051 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Finnbogi Hilmarsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík