Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Sigþór Reynir Björgvinsson
Vista
fjölbýlishús

Rauðavað í fjármögnunarferli 13

110 Reykjavík

71.400.000 kr.

683.254 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2274344

Fasteignamat

70.350.000 kr.

Brunabótamat

53.620.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2004
svg
104,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Vel staðsetta snyrtilega íbúð í Norðlingarholti. Einkar barnvæn staðsetning þar sem skóli, leikskóli og ný verslun Bónus er í göngufæri. Rúmgóðar svalir með útsýni að Rauðhólum.
Sér stæði í bílageymslu og rúmgóð sameiginleg bíla þvottaaðstaða.
Möguleiki er á þremur svefnherbergjum innan íbúðar.

Lýsing eignar:

Komið er inn í sameiginlegan teppalagðan stigagang. Sérinngangur er inn í íbúð frá sameiginlegum flísalögðum svölum innganga að íbúðum þaðan sem útsýni er að nærumhverfi. 
Forstofa rúmgóð flísalögð og með glugga.
Þvottahús er á vinstri hönd frá forstofu. Flísalagt gólf og með góðu hilluplássi og skápum. Gluggi er í þvottahúsi.
Innangengt er í geymslu íbúðar frá þvottahúsi, parketlagt rými með glugga sem í dag er nýtt sem 3ja svefnherbergi.
Eldhús parketlagt er fyrir miðju eignar, rúmgóð innrétting með neðri skúffum, og efri skápum að hluta. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél. Ofn í vinnuhæð, helluborð og háfur. Granít borðplata og veggir flísalagðir að hluta á vegg og á milli efri og neðri skápa. Útgengi er út á einkar rúmgóðar svalir frá Eldhúsi. 
Stofa/borðstofa samliggjandi rými parketlagt og bjart með útsýni að nærumhverfi og að Rauðhólum.
Svefnherbergi á gangi rúmgott parketlagt og með skáp.
Baðherbergi er á milli svefnherbergis og hjónaherbergis, flísalagt gólf og veggir, upphengt salerni, sturtuklefi og handklæðaofn. Baðinnrétting með neðri skúffum, granítborðplötu og handlaug á borði. Efri skápur og spegill með innbyggðri lýsingu. 
Hjónaherbergi er í enda gangs, parketlagt, bjart og mjög rúmgott með tveimur fataskápum. Stór gluggi er í hjónaherbergi með útsýni að nærumhverfi.

Granít sólbekkir í stofu og herbergjum.
Harðparket á parketlögðum rýmum íbúðar frá Birgisson endurnýjað 2019.
Þak yfirfarið 2021.

Bílakjallari: Sér stæði íbúðar er í bílakjallara. Komið er að bílakjallara á sameiginlegri lóð húseigna. Bíla þvottaaðastaða fyrir íbúa hússins er í bílakjallara. Tenging er komin fyrir rafhleðslubox að hluta. Hilla og tveir skápar á vegg við bílastæði. Sameiginleg bílastæði á lóð við húseign.

Góð eign á eftisóttum stað í Norðlingaholti. 

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is 
Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 













 

img
Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
101 Reykjavík fasteignasala
Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík
101 Reykjavík fasteignasala

101 Reykjavík fasteignasala

Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík
phone
img

Kristín Sigurey Sigurðardóttir

Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. ágú. 2019
40.600.000 kr.
44.500.000 kr.
104.5 m²
425.837 kr.
30. júl. 2015
27.900.000 kr.
31.500.000 kr.
104.5 m²
301.435 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
101 Reykjavík fasteignasala

101 Reykjavík fasteignasala

Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík
phone

Kristín Sigurey Sigurðardóttir

Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík