Kaup fasteigna - góð ráð
Þegar kaupa á fasteign er mikilvægt að undirbúa kaupin vel. Hér á vefnum getur þú nálgast
allar upplýsingar um hvernig best er að undirbúa og standa að kaupunum.
Þegar um fasteignaviðskipti er að tefla er að jafnaði um gríðarlega fjárhagslega hagsmuni að ræða
og fólk yfirleitt að eyða mestu af sínu eigin fé og taka á sig fjárhagslegar skuldbindingar, oft
tugi ára fram í tímann. Það er því mikilvægt að undirbúa kaupin vel.
Hér á eftir getur þú fengið upplýsingar um hvernig best sé að undirbúa og standa að
kaupunum þannig að þú sért sem best meðvitaður/uð um þau viðskipti sem framundan eru. Hér á
eftir verður leitast við að skýra út það helsta sem kaupendur þurfa helst að hafa í
huga.
Hlutverk og skyldur fasteignasala – stutt yfirlit
Löggildingu dómsmálaráðuneytisins þarf til að mega hafa milligöngu um kaup, sölu
eða skipti á fasteignum. Mikilvægt er því að öll ráðgjöf gegnum allt ferli viðskiptanna
sé fengin frá fasteignasalanum.
Hlutverk fasteignasala er að leiða saman kaupanda og seljanda og ber honum að gæta réttmætra
hagsmuna beggja. Fasteignasala er skylt er að semja fyrirfram um þóknanir gagnvart kaupanda og greina frá útlögðum
kostnaði. Fasteignasali skal tryggja sér ótvírætt umboð frá réttum aðila til þeirrar
milligöngu um fasteignaviðskipti sem hann tekur að sér. Hafi hann einkaumboð skal geta þess glögglega.
Fasteignasali skal hafa ábyrgðartryggingu vegna fjártjóns sem leitt getur af störfum hans eða
starfsfólks hans.
Fasteignasali skal skoða eign og semja rækilegt yfirlit um aðalatriði sem máli geta skipt við sölu
eignarinnar. Hann lýsir eigninni, áhvílandi lánum, verði og söluskilmálum. Hann aflar upplýsinga
m.a. um fasteignamat og brunabótamat. Hann ber ábyrgð á því að allar upplýsingarnar séu
réttar.
Fasteign í smíðum skal lýst nákvæmlega miðað við þann
tíma þegar kaupandi á að taka við eigninni og byggingarstig skal vera í samræmi við
staðla.
Fasteignasali skal annast alla skjalagerð varðandi söluna og hvílir sú skylda á honum að
sitja alla fundi þar sem skjöl eru undirrituð hverju nafni sem nefnast. Hann skal leiðbeina kaupanda um gerð tilboðs
og gerir drög að kaupsamningi og síðar afsali. Hann útbýr kostnaðaruppgjör milli seljanda og
kaupanda varðandi söluna.