Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Sigurjón Rúnarsson
Vista
einbýlishús

Neshamrar 1

112 Reykjavík

148.000.000 kr.

808.743 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2038517

Fasteignamat

139.500.000 kr.

Brunabótamat

103.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1990
svg
183 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Neshamrar 1, 112 Reykjavík, birt stærð 183.0 fm. Fallegt einbýlishús á einni hæð með bílskúr á vinsælum stað í Grafarvogi.

Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol sem tengir öll rými saman, gestasalerni, eldhús með þvottahúsi innaf, 4 svefnherbergi, baðherbergi, stofu þar sem útgengt er í garð og innangengur bílskúr úr forstofu.

** Fjögur svefnherbergi.
** Bílskúr.
** Sólpallur.
** Fallegur og gróinn garður.
** Eign sem hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.


Nánari upplýsingar veitir/veita:
Haukur Andreasson Löggiltur fasteignasali, í síma 8669954, tölvupóstur haukur@allt.is.
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasli, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is


Nánari lýsing eignar:
Forstofa
hefur flísar á gólfi. Inngengt í bílskúr.
Gestasalerni var endurnýjað 2024-2025, er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, innréttingu með vask og speglaskáp.
Sjónvarpshol er miðja heimilisins sem tengir öll rými saman. Hefur parket á gólfi og þakglugga sem hleypir góðri birtu inní rýmið.
Eldhús hefur flísar á gólfi, góða eldhúsinnréttingu, helluborð, bakaraofn og borðkrók ásamt góðum búrskáp sem nýtist sem fínt bakarahorn. Inngengt er í þvottahús úr eldhúsi
Stofa er opin og björt með parket á gólfi og flísum að hluta. Útgengt á sólpall.
Hjónaherbergi hefur parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergin eru þrjú öll með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hefur hvíta fallega innréttingu með vask, upphengt salerni og "walk in" sturtu.
Þvottahús var endurnýjað 2024-2025, hefur flísar á gólfi góða innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skolvask, handklæðaofn og glugga.
Bílskúr er innangengur úr forstofu, gólf var málað 2025, milliloft, tveir gluggar og rafmagnshurð.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

img
Sigurjón Rúnarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone
img

Sigurjón Rúnarsson

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone

Sigurjón Rúnarsson