Opið hús: Skipholt 10, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 18. mars 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Góð fjölskyldueign með útleigueingu.
Smellið hér, gudbjorg@betristofan.is til að bóka skoðun eða bókið í síma 8995533
Nánari lýsing:
Aðalhæð:
Forstofa: komið er inn á sameiginlegan teppalagðan inngang með efri hæð hússins.
Eldhús: falleg ljós innrétting, tengt fyrir uppþottavél sem getur fylgt íbúðinni, flísar á gólfi og milli skápa.
Stofur: tvær rúmgóðar samliggjandi stofur sem nýtast sem stofa og borðstofa í dag.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með fataherbergi, parket á gófli.
Baðherbergi: Flísalagt, baðkar með glerþili og sturtutæki, handklæðaofn, vegghengt salerni, gluggi er á baðherbergi.
Geymsla: Geymslur íbúðar eru 2, annars vegar í kjallara og hins vegar stór geymsla tengd bílskúr.
Neðri hæð:
Í dag er inngangengt milli hæða en einfalt er að loka á milli, einnig er innangengt í íbúð um sameiginlegan inngang í kjallara.
Eldhús: ljós innrétting innbyggð uppþvottavél og tengi fyrir þvottavél.
Stofa: rúmgóð stofa með parketi á gólfi.
Svefnherbergi: rúmgott og bjart með parketi á gólfi.
Baðherbergi: nýtt salerni, flísalagt gólf og veggir að hluta.
Bílskúr:
Íbúð í bílskúr skiptist í alrými með eldhúsi og stofu, svefnherbergi og baðherbergi með sturtuklefa.
Framan við bílskúr er sérbílastæði eignarinnar.
Helstu framkvæmdir við eignina undanfarinna ára:
Sameign:
2000: skipt um rafmagnstöflu í sameign
2002-2003: þak endurnýjað
2006: þak á bílskúr endurnýjað, nýr þakkantur og rennur
2009: Sameign teppalögð og máluð
2011: Gluggar og handriði málað
2017: lagnir fóðraðar að hluta
2019: Gafl á bílskúr múr og steypuviðgerð og tréverk málað
2024: Húsið múr og steypuviðgerð Skipholt 10-12
2025: Dren endurnýjað við hús og nýr rafmagnskapall lagður í bílskúr.
Framkvæmdir Séreignar:
2005: aðalhæð parketlögð eikarparketi, neðri hæð lögð harðparketi, nýtt tvöfalt gler, ný innri hurð, rafmagn dregið í bílskúr
2010: nýjar innihurðar á neðri hæð
2016: þvottahúsi á neðri hæð breytt í eldhús og jafnfram settur upp sturtuklefi
2017: Gluggar í sfotu og borðstofu aðalhæðar edurnýjaðir
2023: salerni neðri hæðar endurnýjað
2024: nýr þrýstijafnari.
Góð eign sem hlotið hefur reglulegt viðhald og gefur mikla möguleika.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 8995533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.