Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þóra Birgisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Ásakór 7

203 Kópavogur

74.900.000 kr.

837.808 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2281835

Fasteignamat

71.500.000 kr.

Brunabótamat

52.030.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
89,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna nýja eign í sölu; Ásakór 7, 203 Kópavogi, íbúð 05-05. 
Eignin getur verið laus fljótlega.

Eignin er skráð 89,4 fm. skv. Fasteignskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 80,1 fm. og geymsla í sameign 9,3 fm. Auk þess fylgir eigninni stæði í bílageymslu.
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi með sérinngangi af svölum.
Hún skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og rúmgott alrými með stofu/borðstofu. 
NÁNARI LÝSING:
Forstofa er flísalögð með rúmgóðum fataskáp sem nær upp í loft. Þvottahús er inn af forstofu, flísalagt með tengi fyrir þvottavél og þurrkar og opnanlegum glugga.
Komið er inn í opið og bjart alrými með suður gluggum og hurð út á svalir.
Eldhús er með viðarinnréttingu, granítplötum á bekkjum, tengt er fyrir uppþvottavél, bakarofn í vinnuhæð og ágæt vinnuðastaða og skúffupláss.
Stofan er opin og rúmar vel borðstofu og setustofu, gengið er frá stofu út á rúmgóðar suðursvalir (13,2 fm) sem snúa upp í óbyggt holt.
Herbergin eru tvö;
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum upp í loft.
Barnaherbergi með fataskáp sem nær upp í loft. 
Baðherbergi er með innréttingu, upphengt salerni og handklæðaofni, rúmgóður "walk-in" sturtuklefi er nýlegur. 
Gólfefni; Flísar á forstofu, þvottahúsi og baðherbergi, viðarparket á öðrum rýmum.
Þetta er mjög snyrtileg og vel umgengin eign.
Í sameign á jarðhæð er sérgeymsla þessarar íbúðar, 9,3 fm. auk þess er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni merkt 01-Y2, búið er að setja upp dreifikerfi fyrir rafhleðslu í bílageymslu, en ekki er stöð sem fylgir þessari eign.
Góð aðkoma er að húsinu - þar eru hleðslustöðvar og almennt næg bílastæði
Þetta er falleg eign í góðu lyftuhúsi á vinsælum stað í Kópavogi, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leik(Austurkór)- og grunnskóla (Hörðuvallaskóli). 
Nánari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir, Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Þóra Birgisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Esja fasteignasala
Sundagörðum 2, 104 Reykjavík

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone
img

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. mar. 2007
13.940.000 kr.
22.600.000 kr.
89.4 m²
252.796 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík