Upplýsingar
Byggt 2025
110,6 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
DIGRANES: Skólatröð 6, íbúð 01-14, 200 Kópavogi. Mjög vönduð 110,6 fm 4 herbergja íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi. Íbúðin er TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING FULLBÚIN, parketlögð með Quik step Classic Oak frá Harðviðarvali. Sérgeymsla í sameign og sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðum og möguleiki er að kaupa aukastæði í bílageymslu.BÓKAÐU SKOÐUN HJÁ DAÐA Í SÍMA 824-9096, HILMARI Í SÍMA 824-9098 EÐA ÞÓRARNI Í SÍMA 899-1882.
SJÁ NÁNAR UM EIGNINA Í SKILALÝSINGU. SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT HEIMASÍÐA VERKEFNISINS
Íbúð merkt 01-14 er með 3 svefnherbergjum,eldhúsi, stofu og baðherbergi. Sérþvottahús er í íbúðinni. Geymsla í sameign fylgir. Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara merkt B-143.
ÍBÚÐIN: FORSTOFA/GANGUR: Forstofa með góðum skápum,harðparket.
SÉRÞVOTTAHÚS: með flísalögðu gólfi innréttingu undir þvottavél og þurkara.
BAÐHERBERGI: Baðherbergi er flísalagt vönduðum flísum bæði gólf og veggir. Innrétting með góðum skúffum og efri glerskáp með góðri lýsingu, Steinn á borðum. "walk in" sturta með glerskilrúmi.
HERBERGI I: Hjónaherbergi með góðum skápum skápum, harðparket á gólfum.
HERBERGI II: Svefnherbergi með harðparketi á gólfum.
HERBERGI III: Rúmgott herbergi með harðparketi.
ALRÝMI: Vandað eldhús með miklu skápa og skúffuplássi, eldaeyja, steinn á borðum. Innfelldur ísskápur og uppþvottavél fylgja. Opið yfir í rúmgóða STOFU og gengið út á stórar vestursvalir.
ALMENNT UM EIGNIRNAR: Á lóðinni Álftröð 1 í Kópavogi er JÁVERK ehf að byggja fjölbýlishús með 180 glæsilegum og vel skipulögðum íbúðum sem verða Svansvottaðar. Íbúðin er afhent fullbúin með Quik step Classic Oak parketi frá Harðviðarvali og vönduðum innréttingum frá Selós, steinn á borðum. Flísalögð baðherbergi og þvottahús (þar sem þau eru sér) með Limestone MGM, 60x60 cm flísum frá Ebson bæði gólf og veggir að hluta. Hefðbundið ofnakerfi og ofnar eru í íbúðinni og jafnvægisstillt loftræsikerfi með varmaendurvinnslu er í hverri íbúð. Hefðbundið útsogskerfi er í geymslum.
INNRÉTTINGAR: Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Selós. Skápar eru úr vönduðu stitsterku melamin efni. Vönduð heimilistæki eru í íbúðum sem eru frá AEG. Kæli-/frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttinguna og spanhelluborð. Dekton – Rem steinborðplötur eru í öllum eldhúsum og Silestone – Nolita steinborðplötur eru á böðum. Gólfhiti er í gólfi baðherbergis auk handklæðaofns. Bílastæði í kjallara fylgja öllum íbúðum og möguleiki er á að kaupa viðbótarstæði.
GARÐUR: Sólríkur og skjólgóður inngarður með leiktækjum, gróðri og aðstöðu fyrir iðandi mannlíf. Glæsilegar íbúðir við Digranes með einstaklega góða staðsetningu fyrir barnafólk.
Afhending íbúðanna: Íbúðin er tilbúin til afhendingar við undirritun kaupsamnings.
Nánar um íbúðirnar við Digranes: Bjartar og vel hannaðar íbúðir sem eru tilbúinar til afhendingar fullbúnar án megingólfefna og með vönduðum innréttingum, vandaðar flísar eru á baðherbergjum og þvottahúsgólfi.
Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna sem og að einnig var hugað að því að hver og ein íbúð hefur vélræn loftskipti sem tryggja aukin loftgæði.
Svansvottun: Mjög er vandað til allrar framkvæmdar. Allt byggingarefni og öll framkvæmd verkefnisins miðast við kröfur Svansins og stefnt er að því að fá allar íbúðir Svansvottaðar hjá Umhverfisstofnun við verklok. Sjá nánar um svansvottun hér: Svansvottun
SKIPULAGSGJALD: Kaupendur greiða skipulagsgjald 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook