Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1954
180,3 m²
5 herb.
3 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lýsing
LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:
Holtagata 1, Reyðarfirði.
Fallegt steinsteypt einbýlishús á stórri hornlóð miðsvæðis á Reyðarfirði.
Snyrtilegur bílskúr með gryfju er sambyggður húsinu.
Falleg hellulögn er framan við húsið og á innkeyrslu að bílskúrnum.
Grunnskólinn er við enda götunnar og einnig leikskóli og íþróttamannvirki ásamt leiksvæði barna og unglinga. Lágvöruverðsverslun er í göngufæri ásamt ýmissi þjónustu.
Falleg gönguleið frá miðbæ Reyðarfjarðar og til fjalls liggur meðfram Búðará sem er skammt frá húsinu.
Aðalinngangur í húsið snýr í suður. Nokkrar tröppur eru upp að dyrunum og er verönd tengd þeim.
Komið er inn í forstofu með stórum vesturglugga og er falleg upprunaleg terrazzo steinlögn í brúnum tónum á gólfinu.
Innan við forstofuna er alrými. Úr því er gengið í stórt vinnuherbergi sem upphaflega var ætlað sem eldhús og eru langir að einhverju leiti til staðar. Gluggar á þessu rými eru bæði í suður og vestur. Inn af rýminu eru lítið kalt búr með hillum. Gluggi snýr í norður.
Eldhúsið er í dag í rými sem upphaflega átti að vera barnaherbergi. Þar er snyrtileg sérsmíðuð eldri innrétting og pláss fyrir eldhúsborð og stóla í litlum borðkrók.
Flísalögð gestasnyrting er norðanmegin í húsinu.
Stærsta svefnherbergið er vel rúmgott og með sérsmíðuðum spónlögðum fataskáp með geirnegldum útdraganlegum skúffum ásamt hillum og hengjum. Gluggi snýr í norður.
Baðherbergi með glugga er inn af herberginu. Þar er bæði baðkar og sturta. Flísar eru á gólfi og veggjum, sérsmíðuð innrétting með veglegri hvítri handlaug. Breyta þurfti baðherberginu til að koma fyrir stærri sturtu og hefur ekki verið að fullu gengið frá eftir þær breytingar.
Lítið herbergi er við enda gangsins og snýr gluggi þess í austur.
Samliggjandi stofa og borðstofa eru eftir endilangri suðurhlið hússins. Skemmtilegur útskotsgluggi er á stofunni. Hægt væri að stúka af herbergi við enda stofunnar.
Gólf á stofum og alrými hafa nýlega verið flotuð og hafa gólfenfni ekki verið sett á.
Úr vinnuherberginu sem átti að vera eldhús liggur stigi niður í rúmgott þvottahús. Þar er lagt fyrir salerni og sturtu. Ljósar steinflísar eru á þvottahúsgólfinu og eru til samsvarandi flísar á stigann.
Sér inngangur er í kjallarann og er þar rúmgóð forstofa. Úr forstofunni er gengið inn í rúmgott herbergi með 2 gluggum og varð það áður tvískipt. Ljósar flísar eru á gólfi.
Nýjar innihurðir í húsið fylgja með við sölu.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. des. 2023
42.300.000 kr.
42.000.000 kr.
180.3 m²
232.945 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026