Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þóra Birgisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Háaleitisbraut 24

108 Reykjavík

89.900.000 kr.

659.574 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2014022

Fasteignamat

83.150.000 kr.

Brunabótamat

63.670.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1963
svg
136,3 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Esja fasteignasala og Þóra Birgisdóttir, löggildur fasteignasali, kynna nýja og fjölskylduvæna eign með bílskúr í sölu við Háaleitisbraut 24.
Um er að ræða 5 herbergja íbúð á 3. hæð ásamt bílskúr. Eignin er skráð 136,3 fm skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 116,8 fm, og bílskúrinn 19,1 fm.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á stílhreinan og vandaðan máta á undanförnum árum.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu/hol með fataskáp og þaðan inn í opið alrými sem tengir aðrar vistarverur íbúðarinnar.
Stofurnar eru opnar og bjartar.  Setustofa er með góðum gluggum til suðvestur sem tryggja gott birtuflæði.  Borðstofan er samhliða stofunni en, þar var áður gert ráð fyrir fjórða svefnherberginu og auðvelt er að koma því við aftur. Gengið er út á skjólgóðar suðvestur svalir frá borðstofunni.
Eldhúsið hefur nýlega verið endurnýjað með fallegri innréttingu þar sem blandað er saman hvítum og svörtum lit á framhliðum með skemmtilegum hætti. Bekkplötur eru úr náttúrusteinn frá S. Helgasyni, með niðurfelldum vaski, sérhannaðri lýsingu og vönduðum eldhústækjum frá Siemens þar á meðal innbyggðri uppþvottavél. Ísskápur fylgir með í kaupunum. Eldhúseyja býður upp á sæti fyrir 3–4.
Inn af eldhúsi er þvottahús með góðri innréttingu, skápum og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Þar er einnig opnanlegur gluggi.
Baðherbergið er nýlega endurnýjað, flísalagt með stórum flísum. Þar er rúmgóður "Walk-in" sturtuklefi með innfelldum og vönduðum blöndunartækjum, upphengt salerni, innrétting undir sérsmíðaðri handlaug frá S. Helgasyni og speglaskápur með góðu geuymsluplássi. Innfelld lýsing gefur rýminu fallegt yfirbragð.
Á svefnherbergisgangi er góður fataskápur og lítil setustofa við enda gangsins.
Svefnherbergin eru þrjú.
Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum og útgengi á svalir. Barnaherbergi innst á gangi með fataskáp. Þriðja herbergið er staðsett við forstofu.
Á gólfum er vandað viðarparket frá Ebson, en flísar eru á votrýmum.
Þetta er einstaklega falleg og vel skipulögð íbúð.
Sameign og geymslur
Í sameign hússins á jarðhæð er vagna- og hjólageymsla, auk sérgeymslu íbúðarinnar sem er 6,1 fm (merkt 03-0004). Þar er einnig sameiginlegt þvottahús.
Bílskúrinn er 19,5 fm og staðsettur í bílskúrslengju á móti framhlið hússins. Þar er hiti, rafmagn, rennandi vatn og rafdrifin hurð.
Eignin er vel staðsett með tilliti til verslana, þjónustu, skóla og leikskóla ásamt góðu aðgengi að almenningssamgöngum.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir, löggildur fasteignasali í síma 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Þóra Birgisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Esja fasteignasala
Sundagörðum 2, 104 Reykjavík

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone
img

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. júl. 2023
65.250.000 kr.
79.900.000 kr.
136.3 m²
586.207 kr.
5. jan. 2021
48.950.000 kr.
52.900.000 kr.
136.3 m²
388.114 kr.
15. apr. 2008
25.420.000 kr.
29.000.000 kr.
136.3 m²
212.766 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík