Opið hús: Norðurbakki 1B, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 204. Eignin verður sýnd sunnudaginn 15. mars 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.
Lýsing
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN & INGIBJÖRG LGF. OG FÉLAGSMAÐUR Í FÉLAGI FASTEIGNASALA KYNNA:
Í einkasölu 3ja. herb. íbúð á 2. hæð við Norðurbakka í Hafnarfirði. Húsið er klætt að utan með flísum, gluggar álklæddir og lóðin fallega frágengin. Stæði í bílageymslu og lyfta í húsinu. Göngufæri við miðbæ Hafnarfjarðar með iðandi mannlífi, bakarí og kaffihús á jarðhæðinni.
Birt stærð samkv. HMS 95,2 fm íbúð og 7,1 fm. geymslu. Birt stærð séreignar er 102,3 fm.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Ingibjörg lögg.fasteignasali s. 897-6717 eða inga@landmark.is
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT
✅ Björt og mjög rúmgóð íbúð.
✅ Fallegt útsýni út á sjóinn.
✅ Tvennar svalir, aðrar yfirbyggðar.
✅ Stæði í bílakjallara.
✅ Stutt í helstu þjónustu.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar, sér geymsla og stæði í lokuðum bílakjallara.
Forstofa: Parket á gólfi og rúmgóðir fataskápar.
Hjónaherbergi: Parketlagt með góðum fataskápum og útgengi út á svalir með útsýni milli blokka út yfir á sjóinn.
Barnaherbergi : Parketlagt með fataskáp. Rennihurð er á herberginu en möguleiki er að opna þar aftur og tengja við stofuna.
Stofa/borðstofa: Er parketlögð með útgengi út á rúmgóðar yfirbyggðar svalir sem nýtast mjög vel sem framlenging af stofu.
Eldhús: U-laga eikar innrétting, flísar fyrir ofan helluborð. Tengi fyrir uppþvottavél, gott vinnupláss. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, steyptur sturtubotn með glervegg, góð innrétting.
Þvottahús: Inn af baðherbergi er þvottahús með innréttingu.
Geymsla: Sér geymsla er á jarðhæð (7,1 fm.) ásamt hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílastæði: í bílakjallara merkt B35 (204)
Virkilega björt og fín íbúð í vönduðu lyftuhúsi, snyrtileg sameign og stæði í bílakjallara. Stutt í helstu þjónustu og með miðbæ Hafnarfjarðar og Fjörðinn handan við götuna. Fallegar gönguleiðir í nágrenninu meðfram sjávarsíðunni.
Húsgjöld eignar eru samtals kr.48.140.- á mánuði en þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélaga, framkvæmdarsjóður,rekstur á bílakjallara, allur hiti, rafmagn í sameign.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Ingibjörg Agnes Jónsdóttir lögg.fasteignasali gsm: 897-6717 eða inga@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat