Lýsing
Um er að ræða nýja 147.4 fm fimm herbergja íbúð á jarðhæð með verönd á þessum vinsæla stað í vesturbænum.
Íbúðin er hugsuð fyrir íbúa/eigendur sem að eru 60 ára og eldri.
Mjög mikil og góð sameign er í húsinu og sterkt húsfélag.
VERIÐ ER AÐ KLÁRA AÐ STANDETJA ÍBÚÐ SEM AÐ VERÐUR LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 136.4 fm merkt 00-05 og geymsla er 11 fm merkt 00-08, samtals er íbúð því 147.4 m2 að stærð.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Forstofu/anddyri, tvær stofur, sjónvarpsherbergi, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, gestabaðherbergi, þvottaherbergi og sérgeymslu.
Nánari lýsing á eign:
Forstofa/anddyri með innbyggðum fataskápum.
Á vinstir hönd úr forstofu er inngengt í herbergjaálmu en þar er alrými sem er teiknað sem sjónvarpsherbergi en auðvelt væri að breyta í svefnherbergi.
Rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi innaf með vönduðum innréttingum.
Baðherbergi sem að er með flísum á gólfum og veggjum, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, vegghengt salerni, ágætis innrétting undir vask með hirslum, handklæðaofn.
Þvottaherbergi með flísum á gólfum, vinnuborð með skolvask.
Á hægri hönd úr forstofu er komið inní borðstofu og eldhús sem að er með fallegri eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum, eldunareyja með helluborði er í miðju rými, innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu.
Í framhaldi af borðstofu er rúmgóð stofa.
Í miðjurými þegar komið er úr forstofu er eitt svefnherbergi með fataskápum.
Gestasnyrting með ágætis innréttingu í kringum vask, handklæðaofn og vegghengt salerni.
Sérgeymsla íbúðar er framan við inngang í íbúð.
Gólfefni: Harðparket / vinyl parket á gólfum en votrými eru flísalögð.
Upplýsingar um endurbætur:
-Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar og fataskápar í íbúð frá BRÚNÁS.
-Innihurðar eru frá PARKA.
-Vönduð blöndunartæki á baðherbergjum og í eldhúsi.
-Eldhústæki eru frá Siemens.
-Allt rafmagnsefni, lagnaefni og neysluvatnslagnir eru nýjar í íbúð.
Verið er að breyta skráningu á húsnæði úr atvinnuhúsnæði og yfir í íbúðarhúsnæði.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat