Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Geir Sigurðsson
Jón Örn Kristinsson
Vista
fjölbýlishús

Seljabraut 38

109 Reykjavík

75.500.000 kr.

444.379 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2056238

Fasteignamat

82.200.000 kr.

Brunabótamat

75.620.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1974
svg
169,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Björt 101,2 fm fjögurra herbergja enda íbúð á 1.hæð með garðskála, 4,7 fm geymslu og 33,8 fm aukarýmis á jarðhæð, áður skráð leikherbergi en er nú innréttað sem tvö herbergi með sér inngangi úr sameign, íbúðinni fylgir bílastæði í bílageymslu. Samtals er birt stærð íbúðarrýmis 139,7 fm, auk bílastæðis í bílageymslu skráð 30,2 fm, samtals er eignin 169, 9 fm. (stærðir skv. nýjum eignaskiptasamningi)
 
Íbúðin er vel staðsett í fjölskylduvænu hverfi í göngufæri í matvöruverslun, leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og sundlaug. Íbúðin skiptist í forstofurými, eldhús, lítið þvottaherbergi, þrjú herbergi (eitt herbergið án hurðar), baðherbergi, stofu og garðskála. Á jarðhæð er 33,9 fm aukarými sem gefur ýmsa möguleika, er nú tvö herbergi með góðri lofthæð, stórum gluggum og sér inngangi úr sameign. Einnig er geymsla íbúðarinnar á jarðhæð auk sameiginlegrar vagna- og hjólageymslu. Innangengt er úr sameign í bílageymslu og tilheyrir íbúðinni bílastæði, merkt 11-0101. 

Nánari lýsing: Komið er inn í forstofurými með gólfflísum og fataskápum. Við forstofurými er lítið þvottaherbergi með gólfflísum og skolvask. Eldhús er með gólfflísum, hvítri eldhúsinnréttingu, veggflísum, innfelldri lýsingu í eldhúsinnréttingu, keramik helluborði, viftu og veggofni. Öll herbergin eru með skápum og gólfflísum, eitt herbergið er opið án hurðar. Flísalagt baðherbergi er með glugga, baðkari, baðinnréttingu og vegghengdu salerni. Gólfhiti er í baðherbergi, hjónaherbergi og í eldhúsi. Á jarðhæð er 33,9 fm parketlagt rými sem áður var skráð leikherbergi. Rýmið gefur ýmsa möguleika og er með sérinngangi úr sameign, góðri lofthæð og þremur góðum gluggum, ath. hluti rýmisins er óinnréttað. Á jarðhæð er einnig geymsla íbúðarinnar, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og er innangengt úr sameign inn í bílageymslu þar sem er eitt bílastæði tilheyrir íbúðinni. Einnig er í bílageymslu sameiginlegt rými fyrir bílaþvott. 

Íbúðin er laus strax ! 

Eignin gefur ýmsa möguleika og er tilvalið tækifæri fyrir handlagna sem vilja breyta og bæta. 

Nánari upplýsingar veitir Geir Sigurðsson löggiltur fasteignasali í síma 655-9000, netfang: geir@husasalan.is. 

img
Geir Sigurðsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Húsasalan
Síðumúla 33, 108 Reykjavík
Húsasalan

Húsasalan

Síðumúla 33, 108 Reykjavík
phone
img

Geir Sigurðsson

Síðumúla 33, 108 Reykjavík
Húsasalan

Húsasalan

Síðumúla 33, 108 Reykjavík
phone

Geir Sigurðsson

Síðumúla 33, 108 Reykjavík