Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1983
140 m²
4 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Opið hús: 17. mars 2026
kl. 17:30
til 18:00
***OPIÐ HÚS ÞRIÐJUDAGINN 17. MARS FRÁ 17:30 - 18:00***
Lýsing
Fasteignasalan TORG kynnir: Fallegt raðhús með bílskúr og sólpalli til suðurs í hjarta Garðabæjar við Kjarrmóa 11. Um er að ræða 140 fm raðhús á tveimur hæðum en til viðbótar er ca 14 fm þriðja hæð sem er ekki inn í skráðum fermetrum. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, sjónvarpshol, stórt þvottahús og bílskúr. Góður garður til suðurs með sólpalli og heitum potti. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is
Nánari lýsing:
Fyrsta hæð: Gengið er inn í flísalagða forstofu með ágætu skápaplássi. Úr forstofu er einnig innangengt inn í bílskúr. Fyrir innan forstofuna er parketlagður gangur. Eitt svefnherbergi er á fyrstu hæðinni með parketi á gólfi og fataskáp með rennihurðum. Þvottahúsið er mjög rúmgott með flísum á gólfi og góðum hvítum skápum. Úr þvottahúsinu er útgengt í mjög fallegan bakgarð til suðurs sem er bæði hellulagður og með fallegum sólpalli. Heitur pottur er í bakgarðinum. Baðherbergið er flísalagt með fallegum flísum í hólf og gólf, opnum sturtuklefa með hertu gleri, upphengdu salerni, handlaug og handklæðaofni.
Önnur hæð: Tvö parketlögð svefnherbergi eru hlið við hlið á annari hæðinni en annað þeirra er með mjög góðum fataskápum. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með marmara flísum, baðkari, handlaug og upphengdu salerni. Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu með góðu skápaplássi. Stofan og borðstofan eru í opnu rými með parketi á gólfi en úr borðstofu er einnig hægt að ganga út á svalir og út í bakgarð.
Þriðja hæð: Á þriðju hæðinni er opið rými með ca 14 fm gólffleti sem gæti nýst vel sem sjónvarpsherbergi, skrifstofa eða mögulega sem auka herbergi. Rýmið er með opnanlegum gluggum. Þriðja hæðin er ekki inn í skráðum fermetrum þar sem hún er undir súð og ekki með fullri lofthæð.
Um er að ræða virkilega skemmtilegt raðhús á frábærum stað í hjarta Garðabæjar þar sem stutt er í verslanir, skóla, leikskóla, leikvelli og margt fleira. Þetta er eign sem vert er að skoða!
Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. sep. 2022
67.750.000 kr.
97.900.000 kr.
140 m²
699.286 kr.
6. sep. 2021
60.050.000 kr.
79.900.000 kr.
140 m²
570.714 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026