Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
raðhús

Hólavað 13

110 Reykjavík

137.500.000 kr.

937.287 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2309038

Fasteignamat

124.750.000 kr.

Brunabótamat

67.910.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2009
svg
146,7 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 17. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30

Hólavað 13 - Fallegt endaraðhús á tveimur hæðum með bílskúr á eftirsóttum stað í Norðlingaholti. Opið hús þriðjudaginn 17. mars frá kl. 17.00 - 17.30. Verið velkomin.

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallegt og bjart endaraðhús með bílskúr á eftirsóttum stað við Hólavað í Norðlingaholti Reykjavík. Falleg skjólsæl baklóð er til suður með afgirtri stórri viðaverönd með heitum potti og tyrfðri flöt með trjágróðri. Steypt bílastæði með snjóbræðslu með stæði fyrir allt að 3 bíla er við húsið sem er á tveimur hæðum í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu, leikskóla, grunnskóla, verslanir og náttúruna.

Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu með þvottaaðstöðu, hol, tvö stór barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi með inngengu fataherbergi, eldhúsi, borðstofu, stofu, bílskúr og svo er ca 30 fermertra risloft manngengt að hluta sem er ekki í fermetratölu eignar. Gólfhiti er í allri eigninni.


Forstofa, flísalögð með fataskápum. 
Gestasnyrting / Þvottaherbergi, með glugga, flísalagt gólf, með upphengdu wc, innrétting og innrétting undir vélar og skápar.
Hol, vinilparket á gólfi og útgengið á afgirta og stóra viðarverönd til suðurs með heitum potti og þaðan í garð.
Barnaherbergi l, rúmgott með vinilparket á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi ll, rúmgott og vinilparket á gólfi.
Gengið er upp teppalagðan stiga frá holi upp á aðra hæð sem er með aukinni lofthæð og þakgluggum.
Stofa/ borðtofa, í einu rými, vinilparket á gólfi og útgengi á stórar suðursvalir. Einnig er aðgengi að stóru rislofti.
Eldhús, rúmgott með vinilparketi á gólfi, hvítri Ikea innréttingu, innbyggðri uppþvottavél, innbyggður ískápur og frystir, tveir ofnar í vinnuhæð, eyja með spanhelluborði og borðaðstöðu.
Hjónaherbergi, vinilparket á gólfi, með rennihurð inn á baðherbergið . 
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, upphengt wc, baðkar, flísalögð sturta, innrétting og innaf því er fataherbergi.
Fataherbergi, með gluggum, flísalagt gólf, með aukinni lofthæð og innréttingu. 
Bílskúr, steypt gólf með rennandi heitu og köldu vatn, hillum, vinnuborði og rafknúinni hurð án mótors ásamt gönguhurð.

Lóðin er fullfrágengin, skjólsæl og stór með steyptu bílastæði með snjóbræðslu við inngang og steyptri stétt við vesturhlið hússins. Garðurinn er afgirtur með tyrfðum flötum, gróðri  og stórri viðarverönd með heitum potti. 

Húsið, lítur vel út og hefur hlotið gott viðhald.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð og barnvæn, þaðan sem örstutt er í leikskóla, grunnskóla, verslanir, út á stofnbrautir og í náttúruna. 

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
 

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. des. 2010
21.400.000 kr.
24.900.000 kr.
146.7 m²
169.734 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone