Upplýsingar
Byggt 1988
221,4 m²
6 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 16. mars 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Seiðakvísl 18, 110 Reykjavík. Eignin verður sýnd mánudaginn 16. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Seiðakvísl 18, 221.4 fm. Fallegt og vel staðsett einbýlishús ásamt sérstæðum bílskúr. Vífill Magnússon arkitekt teiknaði húsið árið 1983, en byggingarár hússins er 1988.Suðurgarður með timburverönd, upphitað bílastæði fyrir framan bílskúr. Vel staðsett hús þar sem stutt er í skóla, náttúruna í Elliðarárdalnum og umferðaræðar í allar áttir.
Eignin skiptist í: Forstofu/hol, gestasnyrtingu, stofu, borðstofu, blómastofa, eldhús. Efri hæð: hol. sjónvarpsherbegi, þvottahús, baðherbergi og 4 svefnherbergi.
Bílskúrinn er snyrtilegur með rafmagni og hita.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari lýsing: Komið er inn í flísalagða forstofu með gestasnyrtingu, síðan er komið inn í hol sem opnast inn í bjarta stofu, blómastofu og borðstofu, parket er á gólfum og flísar í blómastofu. Innaf borðstofu er eldhús með hvítri upprunalegri innréttingu og með parketi á gólfum. Fallegur arinn er í stofu. Gengið er út á timburverönd til suðurs frá blómastofu.
Steyptur stigi er á milli hæða.
Efri hæð: Mikil lofthæð og rúmgóð rými gera hæðina mjög skemmtilega. Svefnherbergin eru fjögur og öll rúmgóð. Parket er á gólfum. Baðherbergið er flísalagt með baðkari, sturtu og innréttingu.
Gluggi er í baðherberginu. Þvottahúsið er með flísum á gólfi og glugga.
Sjónvarpsholið er parketlagt og væri mögulegt að breyta því í svefnherbergi.
Tvennar svalir eru á efri hæðinni og þaðan er fallegt útsýni.
Nánari upplýsingar veitir: Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093, tölvupóstur kjartan@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090 og Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook