Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Gnoðarvogur 76

104 Reykjavík

126.900.000 kr.

737.791 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2023139

Fasteignamat

114.900.000 kr.

Brunabótamat

82.560.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1960
svg
172 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 21. mars 2026 kl. 13:00 til 13:30

Opið hús: Gnoðarvogur 76, 104 Reykjavík, Hæð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 21. mars 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Lýsing

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna bjarta og mikið endurnýjaða 6 herbergja hæð með sérinngangi ásamt bílskúr á frábærum stað í Vogunum í Reykjavík.  Eignin er skráð 172 fm þar af bílskúr 23,8 m2. Tvær geymslur. Húsið er reisulegt steinsteypt fjórbýlishús byggt 1960.

Nánari lýsing:
Forstofa  Náttúruflísar á gólfi, góður fataskápur ásamt fatahengi.
Gestasalerni er inn af forstofu, flísalagt í hólf og gólf, með náttúruflísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum. Nett innrétting undir handlaug, upphengt salerni. Opnanlegur gluggi.
Eldhúsið er með glæsilegri hvítri háglans innréttingu með graníti á borðum. Vaskurinn er niðurfelldur. Span helluborð og háfur. Stæði fyrir uppþvottavél. Gluggar á tvo vegu sem að gefa rýminu fallega birtu.
Hol með fallegu eikar parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa eru samliggjandi í björtu og rúmgóðu rými með fallegu eikarparketi á gólfi og útgengi út á sólríkar suður svalir. Fallegar hurðar með gleri skilja að stofu og hol.
Herbergi (1)  er inn af eldhúsi með flísum á gólfi og góðum glugga. Var áður þvottaherbergi, lagnir til staðar og lítið mál að breyta því í fyrra horf. ( vantar mynd í auglýsingu) 
Herbergi (2) með fallegu eikaparketi á gólfi og hvítum fataskáp með rennihurðum.
Herbergi (3) með fallegu eikarparketi á gólfi og hvítum fataskáp.
Herbergi (4) með fallegu eikarparketi á gólfi.
Baðherbergi með náttúruflísum á gólfi og fallegum blönduðum flísum á veggjum. Stór sturtuklefa með glerskilrúmi. Upphengt salerni og smekkleg eikarinnrétting. Handklæðaofn. Opnanlegur gluggi. Hitalögn í gólfi.
Bílskúr með rafmagni og heitu/köldu vatni og nýlegri rafdrifinni bílskúrshurð. Flísar á gólfi. 
Sameign er einstaklega snyrtileg með sameiginlegu þvottahúsi, hver með sína vél.
Geymslur eru tvær, önnur með lökkuðu gólfi og glugga. Hin er köld geymsla undir stiga.
Helstu framkvæmdir:
2012-2013
Var íbúðin mikið endurnýjuð m.a eldhús ásamt öllum tækjum. Bæði baðherbergi endurnýjuð. Innihurðir endurnýjaðar. Ofnar endurnýjaðir. Ný rafmagnstafla. Ný gólfefni.
2016-2017 Dren og skolplögn endurnýjuð ásamt vatnslögnum. Þvottahús flotað og sameign máluð, gólf lökkuð.
2022 Húsið múrviðgert á austurhlið og hluta af framhlið, grunnað yfir.

Hér er um að ræða vel staðsetta eign í hinu vinsæla Vogahverfi Reykjavíkur þar sem stutt er í verslanir, þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttir og útivist.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir  löggiltur fasteignasali, sigridur.lind@heimili.is, 8994703. 

 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. júl. 2017
52.350.000 kr.
61.900.000 kr.
168.3 m²
367.796 kr.
25. jún. 2013
36.600.000 kr.
47.000.000 kr.
168.3 m²
279.263 kr.
24. nóv. 2011
29.200.000 kr.
35.500.000 kr.
168.3 m²
210.933 kr.
26. okt. 2010
32.100.000 kr.
32.300.000 kr.
168.3 m²
191.919 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík