Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Freyjugata 32

101 Reykjavík

105.000.000 kr.

1.178.451 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2008959

Fasteignamat

83.000.000 kr.

Brunabótamat

57.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1932
svg
89,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
Opið hús: 17. mars 2026 kl. 17:00 til 17:45

Lýsing

Miklaborg kynnir: Falleg og björt þakíbúð á mjög eftirsóttum stað í Freyjugötu, gegnt styttugarði Listasafns Einars Jónssonar. Húsið er eitt af þessum fallegu og virðulegu húsum sem einkenna þennan hluta Skólavörðuholtsins. Um er að ræða fjórbýlishús með einni íbúð á hverri hæð. Húsið stendur fyrir neðan götu og bakvið hús er stór sameiginlegur garður til suðurs. Róleg einstefnugata í stuttu göngufæri við allt það sem miðbærinn hefur upp á að bjóða. Þegar komið er úr gönguferð úr miðbænum er mjög skemmtilegt að velja aðkomu að húsinu í gegnum styttugarð Einars Jónssonar.


Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is


Nánari lýsing: Íbúðin var nær öll endurgerð árið 2018 m.a. rafmagn, lagnir, gólfhiti í allri íbúð og innbyggð hljóðkerfi frá Bang & Olufsen í eldhúsi, stofu og baðherbergi. Íbúðin er stærri en skráning segir til um þar sem hluti hennar er undir súð - Grunnflötur hennar er 105,5 m2, góð nýting á herbergjum og rýmum undir súð. Komið er inn í bjarta og rúmgóða forstofu með miklu skápaplássi. Úr forstofu er gengið annars vegar inn í herbergi og hins vegar inn á gang. Herbergið er bjart með þakgluggum og fallegu útsýni yfir Hallgrímskirkju og Listasafn Einars Jónssonar. Parket á gólfi og fataskápur. Af gangi er gengið inn í svefnherbergi, baðherbergi og stofur. Baðherbergi er rúmgott með eldri sérsmíðaðri innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Baðkar með sturtuaðstöðu. Gluggi er á baði. Svefnherbergi er bjart með þakgluggum og fallegu útsýni yfir Hallgrímskirkju og Listasafn Einars Jónssonar. Parket á gólfi og sérsmíðaður fataskápur. Stórar og bjartar stofur eru samliggjandi með opnu og fallegu, nýlegu eldhúsi í öðrum endanum, borðstofu og dagstofu. Í dag er búið að stúka af svefnherbergi með léttumm millivegg þar sem áður var dagstofa. Loft eru upptekin í stofunni og nær 4 m. lofthæð yfir borðstofu sem gefur íbúðinni mikinn karakter og léttleika. Frá stofu er gengið út á suður/suðvestur svalir með fallegu útsýni. Stofa, borðstofa og eldhús mynda skemmtilega heild. Eldhús er nýlega endurnýjað. Falleg hvít innrétting og parket á gólfi. Íbúðinni fylgir geymsluloft og lítil geymsla í kjallara. Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla er einnig í kjallara. Ljósleiðari er tengdur inn í íbúð. Geymsluloft er yfir hluta íbúðarinnar.

Dásamlegt útsýni yfir borgina. Úr íbúðinni sést Hallgrímskirkja, Esjan, Perlan og margt fleira. Á veturna sjást norðurljósin vel úr íbúðinni sem og flugeldarnir á gamlárskvöld. Góðar suður/suðvestur svalir með fallegu útsýni sem njóta sólar stærstan hluta dags.

Stór skjólgóður suðurgarður og stutt í allar áttir.


Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is

img
Þröstur Þórhallsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
img

Þröstur Þórhallsson

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. maí. 2018
51.100.000 kr.
54.050.000 kr.
89.1 m²
606.622 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík

Þröstur Þórhallsson

Lágmúli 4, 108 Reykjavík