Opið hús: Breiðvangur 4, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 02 02 02. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 19. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Birt stærð íbúðarinnar er 132,9 fm., þar af er rúmgóð 14,1fm. geymsla í kjallara, 24,2fm. bílskúr, samtals 157,1fm.
Framkvæmdir:
2023/2024 - Þak, gluggar, svalahurð, múrviðgerðir og húsið málað.
2012 - Ný eldhúsinnrétting
Nánari lýsing:
Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi og skáp.
Til vinstri er hol sem er hefur áður verið nýtt sem sjónvarpsherbergi, með eikarparketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar með eikarparketi á gólfi og útgengi á skjólsælar vestur svalir.
Eldhús var uppært árið 2012 með þá nýrri innréttingu, flísum á gólfi. Innbyggð uppþvottavél, borðkrókur innst í rýminu.
Inn af eldhúsinu er Þvottahús/búr með flísum á gólfi, vask og skápar. Gluggi í þvottahúsi.
Baðherbergi er með innréttingu og vaski, salerni, baðkari með sturtu og flísum á veggjum og gólfi.
Bjart og rúmgott hjónaherbergi með góðum skáp. Tveir gluggar í herberginu. Eikarparket á gólfi
Tvö barnaherbergi með skáp, eikarparket á gólfi.
Í kjallara er stór geymsla (14.1fm.) með hillum.
Hjóla- og vagnageymsla, og tvær aðrar opnar sameiginlegar geymslur.
Kyndikompa þar sem hægt er að geyma dekk.
Bílskúr - 24,2fm. bílskúr með bílskúrshurðaropnara, steypt gólf, heitt og kalt vatn.
Vel staðsett og rúmgóð eign með þremur svefnherbergjum og bílskúr.
Stutt er í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, ásamt allri helstu þjónustu í bæjarfélaginu.
Fyrir nánari upplýsingar, hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - Sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf., sími: 775 5805 / email: runar@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.