Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1932
74,1 m²
3 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 18. mars 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Smáragata 5, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 18. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Hugguleg og sjarmerandi eign á annarri hæð í fjórbýli á eftirsóttum stað í Þingholtunum. Stór eignarlóð og sérbílastæði. Stutt frá Hljómskálagarðinum, kaffihúsum og annarri þjónustu. Íbúðin er í göngufjarlægð frá BSÍ, Reykjavíkurflugvelli, miðbæ Reykjavíkur og í alla helstu þjónustu.Um er að ræða eign sem hefur fengið mikla alúð síðastliðin ár. Nýlega lagt límt eikarparket ásamt endurnýjaðri eldhúsinnréttingu, gluggum og baðherbergi. Einnig voru ofnar hreinsaðir og sandblásnir ásamt þess að hljóðdúkur frá Enso var settur í loft, sem tryggir hágæða hljóðvist.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og tvær samliggjandi stofur og er önnur þeirra nýtt sem svefnherbergi.
***Smelltu hér til að sækja söluyfirlit***
Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofuhol / gang sem tengir saman aðrar vistverur íbúðarinnar. Eikarparket á gólfi. Eldhúsið er með nýlegri innréttingu sem var endurnýjuð árið 2021. Viðarborðplata. Vönduð heimilistæki. Eikarparket á gólfi. Tvær samliggjandi stofur, rúmgóðar og bjartar með gluggum á tvo vegu. Önnur stofan er í dag nýtt sem svefnherbergi og er með nýlegum fataskápum meðfram heilum vegg. Eikarparket er á báðum stofunum og nær það undir skápana svo auðvelt væri að fjarlægja skápana ef til þess kemur. Baðherbergið er snyrtilegt en það var endurnýjað árið 2016. Flísalagt í hólf og gólf. Rúmgóð „walk-in“ sturta með innbyggðum Hanso-blöndunartækjum. Vegghengt salerni. Stór speglaskápur með LED-lýsingu.
Svefnherbergið er rúmgott með gluggum á tvo vegu. Eikarparket á gólfi. Sameiginlegt þvottahús og sér geymsla með útgengi út í garð er í kjallara hússins.
Sameiginlegt þvottahús og sér geymsla er í kjallara hússins.
Sameignin, lóð og ytra byrði húss lítur vel út. Húsið var múrviðgert og málað árið 2018. Tröppur voru múrviðgerðar 2020 og árið 2024 voru gluggar yfirfarnir í íbúðinni og þeir flestir endurnýjaðir. Lóðin er stór og er í sameigin. Á lóð er sérmerkt rúmgott bílastæði fyrir íbúðina.
Smáragata 5 viðhald:
2016 Skolplagnir fóðraðar.
2016 Baðherbergi endurnýjað. Hanso blöndunartæki frá Tengi.
2017 Sigagangur málaður og skipt um ljós í sameign.
2018 Þak yfirfarið
2019 Hús múrviðgert og málað að utan.
2020 Tröppur múrviðgerðar
2021 Eldhús endurnýjað og eldhústæki, rafmagn endurnýjað og nýtt öryggi.
2021 Nýir fataskápar og hurðar í íbúð, skrauthurð lökkuð.
2021 Múrbrot og opnað inní eldhús
2021 Flot og eikarparket. ( parketverksmiðjan - límt, olíuborið og mattlakkað )
2021 Garðhreinsun, grafin upp stétt, tré fjarlægð, tyrft að hluta, viðarvörn.
2022 Hljóðdúkur frá enso í stofu og barnaherbergi
2022 Skólp myndað og í góðu ástandi, einnig vatn og rafmagn.
2023 Skipt um þrýstijafnara í hitagrind.
2024 Skipt um 13 glugga í húsinu (Þar af 4 á 1. hæð, 5 á 2. hæð og 4 á 3. hæð).
2024 Sprunga í útidyratröppum lagfærð og þær vatnsvarðar með silanefni.
2025 Sérsmíðuð gluggatjöld frá Z-brautum á 4 glugga á hæðinni.
Traust og góð eign í reisulegu fjórbýli á þessum eftirsótta stað í Þingholtunum.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s:867-0968 eða unnar@eignamidlun.is.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. mar. 2021
45.650.000 kr.
47.000.000 kr.
74.1 m²
634.278 kr.
17. nóv. 2016
36.800.000 kr.
43.000.000 kr.
97.7 m²
440.123 kr.
15. ágú. 2009
20.580.000 kr.
25.000.000 kr.
97.7 m²
255.885 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026