OPIÐ HÚS AÐ VÍÐIMEL 59, 107 REYKJAVÍK, FIMMTUDAGINN 19. MARS FRÁ KL 17:15-17:45. ALLIR VELKOMNIR!
Lýsing
Um er að ræða virkilega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í fallegu litlu fjölbýlishúsi við Víðimel 59 í Vesturbænum. Sameiginlegur inngangur sem e að eins notaður af tveimur íbúðum. Birt stærð skv HMS: Íbúðin er 70,9 fm merkt 02-02 ásamt 4,9 geymslu merkt: 00-04 og einnig annarri 0,5 fm geymslu merkt: 00-07, samtals 76.3 fm að stærð. Nýlega voru gluggar og gler endurnýjaðir í íbúðinni. Skólplagnir voru endurnýjaðir frá húsi og út í götu árið 2011. Stór sameiginlegur skjólgóður og fallegur garður í mikilli rækt sem snýr í suður. Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.
Nánari lýsing eignar: Sameiginlegur inngangur. Á stigapalli fyrir framan íbúðina er geymsla með hillum. Komið er inn í forstofu / hol, fataskápur og fatahengi. Á vinstri hönd við inngang er rúmgott svefnherbergi I með fataskáp. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, sturta og gluggi. Björt og rúmgóð stofa. Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu, borðkrókur og gluggi. Svefnherbergi II með parketi á gólfi, fataskápur. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. Eigninni fylgir geymsla á stigapalli ásamt kaldri geymslu undir tröppum og geymsluskáp í kjallara. Sameiginlegt snyrtilegt þvottahús, hver með sína vél.
Falleg eign á frábærum stað. Stutt í alla verslun og þjónustu og einnig skóla og leikskóla. Göngufæri við miðborgina, Háskóla Íslands og sundlaug Vesturbæjar.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram
Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat