Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1994
84,9 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sérinngangur
Opið hús: 21. mars 2026
kl. 12:30
til 13:00
Opið hús: Skeljatangi 29, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 02 02 02. Eignin verður sýnd laugardaginn 21. mars 2026 milli kl. 12:30 og kl. 13:00.
Lýsing
Björt 3–4 herbergja íbúð með suðursvölum og stórum afgirtum garði – Skeljatangi 29, Mosfellsbæ
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna: Bjarta og vel skipulagða íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli við Skeljatanga 29 í Mosfellsbæ.
Íbúðin er skráð 3ja herbergja, en úr hluta stofu hefur verið útbúið aukaherbergi með því að stækka geymslurými, sem gefur eigninni sveigjanlega nýtingu.
- Suðursvalir
- 3–4 herbergja
- Stór afgirtur garður í sameign
Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali 660-5532 eða tinna@haborg.is
Íbúðin er skráð 84,9 fm samkvæmt HMS og með henni fylgir köld geymsla (4,6 fm) auk háalofts sem nýtist vel til geymslu.
Skipulag eignar:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með útgengi á suðursvalir.
Úr hluta stofunnar hefur verið útbúið aukaherbergi með því að stækka geymslurými. Rýmið er gluggalaust en nýtist vel.
Eldhús er með hvítri innréttingu og góðu skápaplássi, flísar eru á gólfi.
Herbergin eru þrjú (með aukaherbergi), öll með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu og speglaskáp, baðkari með sturtuaðstöðu og salerni. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Geymsla og sameign:
Með íbúðinni fylgir köld geymsla (4,6 fm) þar sem er rými undir súð sem nýtist vel til geymslu. Auk þess er háaloft sem veitir aukið geymslurými.
Húsið er lítið fjölbýli á tveimur hæðum og í sameign er stór afgirtur garður sem nýtist vel fyrir leik og útiveru.
Staðsetning:
Skeljatangi er staðsettur í rólegu og barnvænu hverfi í Mosfellsbæ þar sem stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttaaðstöðu og aðra helstu þjónustu. Falleg útivistarsvæði eru í næsta nágrenni og góðar samgöngur.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. mar. 2013
19.900.000 kr.
22.300.000 kr.
84.9 m²
262.662 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026