Lýsing
Um er að ræða timburhús á steyptum sökklum með kraftsperrum og límtré í þaki. Húsið er klætt með litaðri báruálklæðningu í lit 9005 (svört). Þak er klætt ólituðu aluzink með álrennum. Framan á þakkanti er slétt álklæðning og bandsöguð timburklæðning máluð svört neðan í kanti.Gluggar og hurðir eru timbur/ál í lit 9005 með tvöföldu gleri, frá Byko eða sambærilegu.
Eignin er fullfrágengin að innan með vönduðum efnum og tækjum, þar á meðal gólfhita, innréttingum, lýsingu og gólfefnum. Lóð er grófjöfnuð með mulningi í bílastæði og ruslaskýli á lóð.
Fyrir nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.is.
Skipulag samkvæmt teikningu
Anddyri – 5,8 fm
Komið er inn í anddyri með fataskáp.
Stofa / eldhús / alrými – 48,6 fm
Mjög rúmgott og opið alrými með góðu plássi fyrir stofu og borðstofu. Eldhús er með innréttingu og eyju.
Hjónaherbergi – 17,9 fm
Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi I – 10,2 fm
Svefnherbergi II – 11,5 fm
Baðherbergi – 7,2 fm
Þvottahús – 4,3 fm
Bílskúr – 31 fm
Innangengt er í bílskúr frá anddyri. Bílskúrshurð með opnara.
Frágangur að utan
- Báruálklæðning á veggjum í lit 9005
- Þak klætt ólituðu aluzink
- Álrennur
- Slétt álklæðning á þakkanti
- Bandsöguð timburklæðning máluð svört neðan í kanti
- Timbur/ál gluggar og hurðir í lit 9005
- Tvöfalt gler
- Lóð grófjöfnuð
- Mulningur í bílastæði
- Ruslaskýli á lóð
- Veggir klæddir með gipsi á spónaplötum/OSB
- Loftaþiljur hvítar með loftlistum
- Upptekið loft í hluta hússins
- Gólfhiti ísteyptur í gólfplötu
- Loftskiptikerfi frá Íshúsinu með útsogi úr votrýmum og innblæstri í önnur rými
- Innréttingar frá IKEA eða sambærilegu í eldhúsi, þvottahúsi og á baði
- Hvítar innihurðir frá Birgisson með stálhúnum
- Harðparket á gólfum
- Flísalagt baðherbergi og þvottahús (60x60 flísar)
- Flísalagðir veggir við sturtu
- Handklæðaofn á baðherbergi
- Hreinlætistæki frá Hans Grohe eða sambærilegu
- Innbyggt salerni
- Krómuð blöndunartæki
- Eldhústæki frá AEG: bakaraofn og 60 cm helluborð
- Húsið málað að innan í einum lit að vali kaupenda
- Innbyggð ljós frágengin
- Útiljós í þakkanti
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.