Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1935
56,2 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 24. mars 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Ásvallagata 57, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 24. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilega nýuppgerða íbúð á eftisóttum stað í Reykjavík Ásvallagötu 57 101 Reykjavík. Um er að ræða virkilega fallega 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í 2ja hæða fjölbýlishúsi (fjórar íbúðir í stigaganginum) Birtar stærðir skv. Hms; Íbúðin er 56.2 m2, merkt 01-01 að stærð, þar af geymsla/skrifstofa merkt 00-01. Íbúðin var nánast öll endurnýjuð 2025, m.a eldhúsinnrétting og tæki, baðherbergi var allt endurnýjað, settur gólfhiti bæði í íbúð og geymslu í sameign sem notuð er sem skrifstofa og einnig voru skápar í svefnherbergi endurnýjaðir. Þetta er virkilega falleg og mjög vel skipulögð íbúð á þessum eftirsótta stað í borginni. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
Nánari lýsing eignar: Forstofa: Komið er inn á gang með fataskáp fyrir yfirhafnir. Á hægri hönd við inngang er glæsilegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, falleg sérsmíðuð innrétting, steyptur sturtubotn með glerskilrúmi og opnanlegur gluggi. Á vinstri hönd við inngang er bjart og rúmgott svefnherbergi með góðum opnum skápum. Eldhúsið er fallegt með nýlegri stál innréttingu og gegnheillri viðarborðplötu, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og stór vaskur. Opnanlegur gluggi og pláss er fyrir lítið eldhúsborð. Stofa: björt og rúmgóð stofa sem rúmar einnig borðstofu. Eigninni fylgir 12,1 fm geymsla í sameign sem er nýtt í dag sem skrifstofa, stór fataskápur, vinnuborð og opnanlegur gluggi. Íbúðin hefur aðgang að sameiginlegu þvottahúsi og þurrkherbergi. Útgengt er úr kjallara í garðinn.
Sérlega fallegur skjólgóður sameiginlegur garður með leiktækjum, bekkjum og fallegum gróðri sem býður upp á marga skemmtilega möguleika til afþreyingar. Sameiginlegur sólríkur timburpallur sem snýr í suðvestur.
Eignin er hluti af sögulegri byggð verkamannabústaða í Vesturbæ Reykjavíkur sem teiknaðir voru af arkitektinum Guðjóni Samúelssyni. Byggingin heyrir undir Húsfélag alþýðu sem sér m.a. um rekstur og viðhald sameignar.
ÞETTA ER VIRKILEGA FALLEG ÍBÚÐ Á EFTIRSÓTTUM STAÐ VIÐ ÁSVALLAGÖTUNA ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU T.A.M SKÓLA, VERSLANIR, KAFFIHÚS, SUNDLAUG O.FL. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. sep. 2018
30.200.000 kr.
32.000.000 kr.
56.2 m²
569.395 kr.
10. jan. 2012
14.550.000 kr.
7.850.000 kr.
56.2 m²
139.680 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026