Opið hús að Hallgerðartúni 53, 860 Hvolsvelli, laugardaginn 28. mars 2026 milli kl. 14:00 og kl. 15:00. Verið velkomin.
Lýsing
HALLGERÐARTÚN 53-57 HVOLSVELLI - ÞRJÚ GLÆSILEG OG VEL SKIPULÖGÐ 4JA HERBERGJA RAÐHÚS Á EINNI HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR - TILBÚIN TIL AFHENDINGAR.
Endahúsin eru 152,8 fm þar af er bílskúr 30,8 fm. Miðjuhúsin eru 132,8 fm þar af bílskúr 29,8 fm. Húsin eru byggð úr timbri og eru á steyptum sökklum. Húsin eru klædd með Cembrit sementsklæðningu. Gluggar eru úr timbri, með áli að utan og þreföldu gleri.
Innréttingar og tæki eru innflutt og sérsmíðuð, gólfhiti, parket og flísar á gólfi, yfirfelldar hurðir af vandaðri gerð og sólpallur í suður. Varmaskiptir á neysluvatni og gólfhita.
Lóð er sléttuð og tyrfð og bílaplan hellulagt, ruslatunnuskýli verða frágengin.
Glæsileg, rúmgóð og vel skipulögð eign með mikilli lofthæð ( 270 cm). Glæsilegt útsýni og eintakt umhverfi.
Verð á endaraðhúsi: 92.900.000
Verð á miðjuhúsi: 82.100.000
Byggingaraðili er SA smíðar ehf sem hafa áunnið sér góðan orðstír fyrir vönduð vinnubrögð og skil á réttum tíma.
Eigninni verður skilað fullfrágenginni að utan sem og innan, með gólfefnum. Eignin skilast á byggingarstigi 7, matstigi 7. Fullfrágengin skv. skilalýsingu. Kaupandi mun greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati. Gatnagerðargjald og tengigjöld veitna eru greidd af seljanda
Nánari lýsing endaraðhúss:
Forstofa með skáp og flísum á gólfi.
Eldhús er með innfluttri, sérsmíðaðri innréttingu, ljúflokunarbúnaður á skúffum, ledlýsing undir efri skápum, innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgir með, bakaraofn og span helluborð með viftu. Steinborðplötur á eldhúsinnréttingu.
Stofa, borðstofa og eldhús er í opnu og björtu alrými með útgengt á timburverönd í suður.
Baðherbergi er með flísum á gólfi á tveimur veggjum, innbyggt upphengt salerni, walk in sturta og handklæðaofn.
Hjónaherbergi I (16 fm) er með fataskápum, gott skápapláss.
Herbergi II (10,4 fm) með fataskáp.
Herbergi III (10,4 fm) með fataskáp.
Þvottahús með góðri innréttingu og flísum á gólfi, innangengt úr þvottahúsi í bílskúr
Bílskúr með rafdrifinni innkeyrsluhurð ásamt gönguhurð, epoxy á gólfi.
Verönd: Útgengt úr stofu á góða verönd sem snýr í suður sem er 3 metrar meðfram öllu húsinu að bakatil.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband á netfangið freyja@landmark.is eða í síma 694-4112
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat