Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1926
82,3 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 24. mars 2026
kl. 17:00
til 17:30
Óðinsgata 4 - Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð - Opið hús þriðjudaginn 24. mars á milli kl. 17.00 og 17.30 - Verið velkomin
Lýsing
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta, vel skipulagða og mikið endurnýjaða 82,3 fermetra 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með fallegu útsýni í virkilega fallegu og virðulegu steinsteyptu fjölbýlishúsi við Óðinsgötu í Reykjavík. Aukin lofthæð er í íbúðinni, eða um 2,7 metrar.
- Nýleg eldhúsinnrétting og tæki
- Nýlega endurnýjað baðherbergi
- Hús að utan nýlega viðgert og málað, skipt um gler og glugga að hluta
- Þakjárn, þakrennur og niðurföll nýlega endurnýjuð
- Klóaklagnir undir húsi og út fyrir vegg nýlegar
Lýsing eignar:
Forstofa / gangur, málað gegnheilt parket á gólfi og fatahengi.
Barnaherbergi, rúmgott, vinylparketlagt og með fataskápum.
Hjónaherbergi, stórt, málað gegnheilt parket á gólfi og góðir fataskápar.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir að hluta, gólfhiti, veggskápar og stór flísalögð sturta með innbyggðum tækjum í vegg og sturtugleri. Tengi fyrir þvottavél í baðherbergi og mögulegt að koma einnig fyrir þurrkara.
Stofa, parketlögð og björt, opin við eldhús.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt, bjart og með borðaðstöðu. Nýlegar mjög fallegar hvítar innréttingar með viðarborðplötu, innbyggðri uppþvottavél og nýjum tækjum.
Á baklóð hússins er sérgeymsla, sem er 6,6 fermetrar að stærð. Bakhús sem geymsla er í er með nýju þaki.
Sameiginlegur kyndiklefi er á jarðhæð hússins og þar er mögulegt að geyma hjól.
Húsið að utan lítur vel út og hefur fengið mjög gott viðhald undanfarin ár.
Baklóð er tyrfð og skjólsæl, sameiginleg með öllum eignarhlutum hússins.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð mjög miðsvæðis í borginni.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. ágú. 2021
44.750.000 kr.
56.000.000 kr.
82.4 m²
679.612 kr.
21. feb. 2020
43.600.000 kr.
48.000.000 kr.
82.4 m²
582.524 kr.
4. des. 2015
25.800.000 kr.
36.000.000 kr.
82.4 m²
436.893 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026