Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þóra Birgisdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 2014
svg
312,7 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni

Lýsing

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna einstaklega vel hannað einbýlishús á frábærum útsýnisstað til sölu.
Álmakór 19, sem er staðsteypt einbýlishús á tveimur hæðum stendur innst í botnlanga með ósnortna náttúru umhverfis húsið að ofanverðu og stórbrotið útsýni  yfir borgina, til sjávar og fjalla.

Húsið var byggt árið 2014 og er skráð 312,7 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, en er í raun töluvert stærra þar sem ca.30 fm óskráð rými nýtast innan hússins. Þá er 78 fm. opið bílskýli með lýsingu og hleðslustöðvum framhald af húsinu sjálfu en telst ekki inni í birtri stærð. Einvalalið fagfólks kom að hönnun og byggingu hússins  þar sem smáatriði og útsjónarsemi hönnuða njóta sín hvort sem er í lýsingu eða efnisvali. Húsið er hannað af Sigurði Hallgrímssyni , innanhússhönnun var í höndum Guðbjargar Magnúsdóttur, lýsingu hannaði Helgi í Lúmex og garðinn, verandir og ytri  umhverfi hannaði Finnur Kristinsson hjá Landslag.
Nánari lýsing; Neðri hæð; Stór og opin forstofa og hol tekur vel á móti fólki með fallegum innfelldum skápum og góðri lýsingu. Inn af forstofunni er fataherbergi/geymsla fyrir yfirhafnir og skó. 
Stórt og bjart herbergi með gólfsíðum gluggum og hurð út á vesturverönd er  næst forstofunni en inn af því er gluggalaust rými, ca 12 fm. sem getur nýst með ýmsum hætti en er í dag notað sem svefnaðstaða. 
Glæsilegt baðherbergi er á hægri hönd, það er flísalagt í hólf og gólf með stórum "walk-in" sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu með góðum hirslum. Möguleiki er að gera studio íbúð á neðri hæðinni  með því að loka/læsa rennihurð frá forstofu sem er þegar til staðar.  Baðherbergið og tæplega 30 fm. herbergi/stofa þar sem auðveldlega mætti stúka af hluta fyrir svefnrými, er með fataskápum og eldhúsinnréttingu, auk forstofu með góðum fataskápum og sér inngangi frá bílastæði  yrðu þannig ein eining. Þetta herbergi þjónar í dag sem sjónvarpsstofa, þar eru gólfsíðir gluggar og rennihurð út á skjólgóða verönd með glæsilegri lýsingu.
Glæsilegur, parketlagður stigi með lýsingu er milli hæðanna - en stór og mikill gluggi tryggir birtuflæði inn í bæði rými efri og neðri hæðar.
Efri hæðin er stórglæsileg og vel skipulögð með stórum gluggum og góðu birtuflæði allan hringinn. Stórar og opnar stofur með gólfsíðum gluggum mót n-vestri, þaðan er frábært útsýni yfir borgina og víðar, rennihurð út á svalir sem liggja meðfram allri norður hlið hússins. Glæsilegt eldhús er með mikilli innréttingu meðfram heilum vegg, stórri eyju með náttúru-steinplötu sem er bæði fjölskylduvæn og býður upp á góða aðstöðu fyrir veisluhöld. Þar eru vönduð eldhústæki frá Miele, öflugur háfur með útsogi, innfelld lýsing, tvöfaldur ísskápur og vandaður vínkælir frá Baco prýða eldhúsið. Meðfram eldhúsinu bæði til suðurs og vesturs er harðviðarverönd að hluta til undir skyggni sem tryggir að hægt er njóta útiveru í góðu skjóli nánast allan ársing hring.
Fjölskyldurými með rúmgóðri sjónvarpsstofu er aðeins afstúkað frá opnu alrými stofu og eldhúss. Þar eru 3 rúmgóð herbergi, tvö stór unglingaherbergi (14,5 fm.) með góðum fataskápum og stórum gluggum og glæsilegt hjónaherbergi með vel innréttuðu fataherbergi inn af. Rúmgott baðherbergi með stórum "walk-in" sturtuklefa, vönduðum, innbyggðum blöndunartækjum, innréttingu, upphengdu salerni og krómlituðum handklæðaofni er bæði glæsilegt og notendavænt. Frá baðherberginu er gengið út á verönd með heitum potti og fjölskyldurými með skjólveggjum með niðurfelldri lýsingu og villtum holtagróðri í ósnortinni náttúru fyrir ofan húsið.
Á hæðinni er einnig flísalagt þvottahús með góðum innréttingum, vélar eru í vinnuhæð og opnanlegur gluggi ásamt loftræstingu.
Húsið sjálft er afar vandað og vel úthugsað fjölskylduhús, herbergin eru stór, innréttingar,skápar og innihurðir sérhannað og smíðað fyrir hvert rými. Vandað, gegnheilt og olíuborið eikarparket er á gólfum þar sem ekki eru flísar og gólfhiti í öllum rýmum.
Stór geymsla (13,2 fm. auk óskráðs rýmis inn af) nýtast afar vel og eru aðgengilegar frá bílageymslunni. Bílageymslan er yfirbyggð og lokuð af á 2 vegu af húsinu sjálfu, þar er innfelld lýsing og nægt pláss fyrir 2-3 bíla. Garðurinn umhverfis húsið er hagagróður og flæðir áfram í óbyggt  svæði sem liggur fyrir ofan /aftan húsið.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Þóra Birgisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Esja fasteignasala
Sundagörðum 2, 104 Reykjavík

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone
img

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík