Upplýsingar
Byggt 2006
101,3 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Rúmgóð og glæsileg 3. herbergja íbúð á 1. hæð í vönduðu lyftuhúsi við Sóltún. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. Tvennar svalir, þar af eru aðrar þeirra lokaðar. Frábær staðsetning á rólegu svæði miðsvæðis í Reykjavík. Gólfhiti er í íbúðinni allri og vandaðar innréttingar.Íbúðin er í dag með einu lokuðu svefnherbergi en aukaherbergið er 7,1 fm og opið við gang. Auðvelt væri að loka því ef þörf er á.
Nánari lýsing.
Forstofa er flísalögð og mjög gott skápapláss.
Eldhús er opið við stofu og borðstofu. Vönduð viðarinnrétting og stálborðplötur. Hægt að sitja við eyju.
Stofa og borðstofa eru í samliggjandi rými með eldhúsi. Rúmgott og auðvelt að vera með góða borðstofu sem og sjónvarpsstofu. Útgengt er frá stofu út á 7,1 fm vestursvalir.
Stórt svefnherbergi (13 fm) með miklu skápaplássi meðfram heilum vegg.
Aukaherbergi eða vinnuhorn (7,1 fm) sem auðvelt væri að loka af og nýta sem svefnherbergi. Útgengi á yfirbyggðar 7,3 fm austursvalir.
Baðherbergið er snyrtilegt. Flísalagt í hólf og gólf. Vönduð viðarinnrétting. Baðkar með sturtu. Vegghengt salerni.
Þvottahús í góðri stærð (5 fm) með góðu vinnurými og með flísum á gólfi.
Rúmgóð geymsla (8 fm) fylgir íbúðinni. Í sameign er vagna- og hjólageymsla. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni í bílakjallara.
Gólfefni íbúðar eru parket fyrir utan eldhús, þvottahús og baðherbergi en þar eru flísar.
Íbúðin gæti verið laus bráðlega.
Nánari upplýsingar veitir
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s:867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook