Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2004
122,7 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Björt og rúmgóð 4ja herbergja íbúð í nýlegu lyftuhúsi við Norðurbrú 5 í Garðabæ. Íbúðin er með vönduðum innréttingum og tækjum. Rúmgóð verönd. Einkastæði í bílakjallara. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.***Smelltu hér til að sækja söluyfirlit***
Nánari lýsing á eigninni:
Komið er inn í flísalagða forstofu með góðu skápaplássi.
Eldhúsið er opið við stofu. Falleg eikarinnrétting með granítborðplötu. Tveir ofnar í vinnuhæð. Stór eyja með góðu vinnuplássi. Helluborð í eyju. Niðurtekið loft er yfir eyjunni með innbyggðri lýsingu og fallegum háfi. Eldhús er flísalagt.
Stofan er björt og rúmgóð, opin við eldhús. Fallegur horngluggi með útsýni yfir ylströndina.
Baðherbergið er flísalagt, baðkar með sturtu og vegghengt salerni. Vegleg eikarinnrétting.
Þvottahús er innan íbúðar, flísalagt. Góð innrétting með vinnuaðstöðu.
Svefnherbergi íbúðar eru þrjú. Hjónaherbergið er rúmgott með skápum meðfram heilum vegg. Minni herbergin tvö eru bæði rúmgóð og með skápum. Úr hjónaherbergi er gengið út á mjög stóra og skjólgóða verönd.
Í sameign er sérgeymsla og hjólageymsla. Íbúðinni fylgir sér einkabílastæði í lokuðum bílakjallara.
Parket er á íbúðinni fyrir utan eldhús, baðherbergi og þvottahús en þar eru flísar.
Einstaklega skemmtileg eign á vinsælum stað.
Stutt í hjóla- og gönguleiðir og ylströndina. Um er að ræða einstaklega glæsilega íbúð á frábærum stað
Húsið var byggt af BYGG árið 2004, steinsteypt og hefur fengið gott og reglulegt viðhald. Bílastæði eru í bílakjallara og fyrir framan hús. Lóðin er snyrtileg en hún er sameiginleg með öðrum húsum á reitnum.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s:867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. mar. 2011
26.550.000 kr.
31.000.000 kr.
122.7 m²
252.649 kr.
19. feb. 2010
29.600.000 kr.
36.000.000 kr.
122.7 m²
293.399 kr.
13. nóv. 2008
29.185.000 kr.
17.000.000 kr.
122.7 m²
138.549 kr.
27. feb. 2008
29.185.000 kr.
38.000.000 kr.
122.7 m²
309.698 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026