Opið hús: Ásakór 1, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 31. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali, í síma 896-6020, eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is
Íbúðin er skráð 102,6 fm samkvæmt HMS og er geymslan 7,8 fm þar af.
Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri með góðum fataskápum sem ná upp í loft og flísum á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými sem er bjart og rúmgott.
Gott skápapláss er í eldhúsinu og rúmgóð og stór eyja skilur það frá stofunni. Parket á gólfi.
Útgengt er út á stórar og rúmgóðar svalir sem snúa í austur.
Stofa/borðstofa eru í samliggjandi flæðandi og rúmgóðu björtu rými með fallegu útsýni og með útgengi út á svalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi er með fataskápum sem ná upp í loft, parket á gólfi.
Herbergi er með parket á gólfi.
Baðherbergi er með góðri innréttingu, baðkari með sturtu í ásamt upphengdu salerni..
Þvottahús er innaf eldhúsi, með hillum, flísar á gólfi.
Nýlegt harðparket er á allri íbúðinni
Sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla eru í sameign.
Átta merkt stæði eru fyrir Ásakór 1-3 með tengi fyrir rafmagnsbíl.
Þetta er mjög falleg og björt eign í góðu barnvænu hverfi en undirgöng eru undir allar helstu götur og þurfa því börn aldrei að fara yfir þær, stutt í alla þjónustu, leikskóla, skóla, sundlaug, íþróttamiðstöð og verslun. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali, í síma 896-6020, eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.