Lýsing
Miklaborg kynnir: Einstaklega fallegt og fjölskylduvænt einbýlishús á þessum eftirsótta stað í Grafarvogi. Eignin er skráð 182,3 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, en þar af er bílskúrinn skráður 32,6 fm. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Húsið er með fallegum garði og timbur verönd sem að hluta ef yfirbyggð með heitum potti. Steypt bílaplan og stétt með snjóbræðslu, á bílaplani er hægt að leggja fjórum bílum auk þess sem pláss er meðfram húsinu til að leggja ferðavagni. Stutt er í ýmsa þjónustu svo sem leik- grunn - og framhaldsskóla, verslanir, sundlaug, Egilshöll og alla helstu þjónustu. Húsinu hefur verið breytt frá upphaflegum teikningum og hefur meðal annars forstofa verið stækkuð auk garðskúrs og því eru þetta sennilega yfir 200 fm í dag. Í garðskúr er rafmagn, heitt og kalt vatn, þar er einnig sturta og klósett í eigninni eru því í raun þrjú baðherbergi.
Nánari lýsing Komið er inn í stóra og bjarta forstofu en úr henni er gengið annars vegar inn í bílskúr og hins vegar í húsið sjálft, þegar komið er inn úr forstofu er gegnið inn í alrými og þaðan inn í önnur rými eignarinnar en þau eru:
4 rúmgóð svefnherbergi.
Geymslu/þvottahús með góðu skápaplássi og borði undir þvottavél og þurrkara sem setur tækin í þægilega vinnuhæð.
Gestaklósett sem er flísalagt með sturtuklefa.
Baðherbergi sem var endurnýjað árið 2019 flísalagt í hólf og gólf með fallegri hvítri innréttingu, upphengdu salerni og innbyggðum blöndunartækjum, sturtu og baðkari.
Sjónvarpshol.
Eldhús með snyrtilegri hvítri innréttingu, miklu vinnuplássi og góðu skápaplássi, helluborð, gufugleypir og ofn í vinnuhæð ásamt glugga með opnanlegufagi.
Stofa með stórum gluggum sem rúmar vel stórt borðstofuborð og góða setustofu.
Úr stofu er gengið út á yfirbyggða timburverönd með heitumpotti sem bæði stækkar stofuna eykur nýtingarmöguleika þessa svæðis árið um kring, þaðan er síðan gengið annars vegar út á stóra timburverönd með skjólveggjum og hins vegar inn í upphitaðann garðskúr með rafmagni, sturtu og klósetti.
Gólfefni: flísar og parket.
Eignin er öll hin snyrtilegasta bæði að innan sem utan.
Allar frekari upplýsingar:
Árni Gunnar Haraldsson lgf arnig@miklaborg.is 8614161