Opið hús: Lundarbrekka 12, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 7. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Bjarta og talsvert endurnýjaða fjögurra herbergja 101,6 fm íbúð á 2. hæð með aukaherbergi í kjallara við Lundarbrekku 12 í Kópavogi.
Íbúðin er 92 fm og herbergi í kjallara er 9,6 fm, samtals birt stærð eignar 101,6 fm. Auk þess er sérgeymsla sem ekki er talin vera inni í skráðum fermetrum eignar.
✅ Björt og töluvert endurnýjuð endaíbúð
✅ Þrjú svefnherbergi ásamt aukaherbergi í kjallara sem hentar til útleigu
✅ Fallegt útsýni úr eigninni
✅ Tvennar svalir í norður og suður
Nánari lýsing
Hol: Harðparket á gólfi.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting á tveimur veggjum, akrílsteinn á bekkjum og á milli skápa, innbyggður ísskápur, tengi fyrir uppþvottavél, bakarofn í vinnuhæð, helluborð og innfelldur gufugleypir. Innst í eldhúsi er borðkrókur, harðparket á gólfi.
Þvottahús: Innan eldhúss, rúmgott með hvítri innréttingu með góðu geymsluplássi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vaskur og gluggi, flísar á gólfi.
Stofa og borðastofa: Björt og rúmgóð með glugga við enda sem gerir íbúðina mjög bjarta, harðparket á gólfi. Útgengi á svalir með útsýni í norður.
Svefnherbergin eru þrjú talsins: Hjónaherbergi er með stórum innbyggðum fataskápum, útgengi á svalir í suður. Annað barnaherbergið mjög rúmgott með fataskáp, þriðja herbergið minna með fataskáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðinnréttingu, vegghengdum skáp, stórum spegli með LED baklýsingu, baðkar með sturtu yfir og handklæðofn á vegg, gluggi.
Herbergi í kjallara: Rúmgott með handlaug og fataskáp, dúkur á gólfi. Aðgengi að sameiginlegri salernisaðstöðu. Gæti hentað til útleigu.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.
Viðhaldssaga
Skv söluyfirliti fyrri eiganda var eftirfarandi gert:
- Baðherbergi gert upp 2016
- Harðparket á gólfi og innihurðir 2019
- Skipt um gler í hjónaherbergi, gler í kjallaraherbergi og opnanlegu fagi í þvottahúsi 2019
Núverandi eigendur:
- Ný ikea eldhúsinnrétting með öllu sem henni fylgir, akrýlsteinn frá Fanntófell 2021, parket lagt á eldhús
- Þvottahús uppgert 2021, ný innrétting og settur vaskur, stæði fyrir þvottavél og þurrkara sett í vinnuhæð
- Baðkar sett á baðherbergi 2021
- Ytra byrði hússins málað og sprunguviðgert 2019
- Múrviðgerðir sumarið 2025, búið að greiða fyrir þær framkvæmdir að fullu
- Til stendur að setja 1 rafhleðslustaur með 2x rafhleðsludokkum fyrir utan Lundarbrekku 12
- Kjallaraherbergi er í útleigu
- Stendur til að mála húsið að utan 2026 eftir múrviðgerðir
Sækja HÉR söluyfirlit samstundis
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat