Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðbjörg Heimisdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 2026
svg
122,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Stórglæsilega 105,2m2 þakíbúð ásamt 17m2 geymslu að Hnjúkamóa 14, íbúð 0501.  Íbúðin er með stórglæsilegu útsýni!  Íbúðin er með tvennum svölum til há-suðurs og vesturs. Tenging fyrir heitan pott og saunaklefa er á svölunum. 
Aukin lofthæð er í íbúðinni og gólfsíðir gluggar.  Kaupendur hafa aukinn sveigjanleika í efnis- og tækjavali.  

** Hægt er að bóka einkaskoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

** Sjá einnig myndir neðst á síðu á:  https://stofnhus.is/hnjukamoi-14/

Eignin telur:

* Rúmgóða forstofu með stórum skápum.  


* Stórglæsilega stofu og eldhús í opnu rými, með stórum, gólfsíðum gluggum sem snúa í vestur og norð/vestur. 

*  Í eldhúsi er falleg, sérsmíðuð Voke III innrétting, ljós í bland við dökka viðaráferð, vönduð AEG heimilistæki;  sjálfhreinsandi ofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og kæli-/frystiskápur.  Borðplöturnar eru slitsterkar kvartseinsplötur frá Technistone.

*  Utangengt er úr stofunni á 33,6m2 timburklæddar svalir með glæsilegu útsýni.  Tengi er fyrir heitan pott og saunaklefa er á svölum.   

* Stórt sjónvarpsherbergi sem á einfaldan hátt er hægt að loka og breyta í svefnherbergi / vinnuherbergi. 

*  2-3 stór svefnherbergi. 

*  Utangengt er á 13,6m2 auka-svalir úr hjónasvítu.  


*  Stórt fataherbergi inn af hjónasvítunni. 

  * Glæsilegt baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu, sturtu úr glerþili með innbyggðum sturtutækjum og fallegum og endingargóðum Grohe hreinlætisækjum, upphengdu wc og innréttingu með speglaskáp.  Á gólfi og 2 veggjum á baðherberginu eru ítalskar 60x120cm ljósar flísar.

* Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á innaf baðherberginu á snyrtilegan hátt.

* Á öllum gólfum, nema baðherbergi, er vandað BerryAlloc Connect XL8 Bloom harðparket með stórum plönkum frá Álfaborg

* Innihurðir: Stílhreinar hvítlakkaðar yfirfelldar hurðir Dana SAX frá Parka.

* LED-ljós frá Ískraft fylgir.

*  Lyfta er í húsinu.

*  Við húsið er stór, sameiginleg,  lokuð hjóla- og vagnageymsla með epoxi á gólfi.   Sorpgerði á lóð. 

*  Á lóðinni eru 25 bílastæði í óskiptri sameign, þar af 2 fyrir hreyfihamlaða. 

*  Rafhleðsla fyrir rafmagnsbíla.  Háhraða ljósleiðaratenging er í húsinu. 

*  Stéttar næst húsi og gangstígar á lóð verða steypt eða hellulagt, snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið og að sorpgerði. að öðru leyti verður lóð frágengin með þökum.

Efnisval:

Innréttingar: Ljósar innréttingar í bland við dökka viðaráferð, sérsmíðaðar af Voké-III. Borðplötur í eldhúsi eru vandaðar og slitsterkar kvartsteinsplötur frá Technistone
Heimilistæki: Vönduð AEG tæki frá Rafha.
Flísar á baðherbergi: Ljósar ítalskar 60x120 Ceramiche Piemme flísar frá Álfaborg
Gólfefni: Vandað BerryAlloc Connect XL8 Bloom harðparket með stórum plönkum frá Álfaborg
Innihurðir: Stílhreinar hvítlakkaðar yfirfeldar hurðir Dana SAX frá Parki
Hreinlætistæki: Vönduð hreinlætistæki frá Grohe, innbyggð sturtutæki og flöt salerniskál.
Lýsing: LED-ljós frá Ískraft fylgja öllum rýmum íbúða
Rofar og tenglar: Hvítur rofabúnaður af gerðinni Jung, frá Reykjafell
Lagnaefni: Vandað pípulagnu- og raflagnaefni frá traustum framleiðendum

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/
S 483 3424

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Super1 pizza (facebook:  super 1 pizza)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er góður tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) og Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is

img
Guðbjörg Heimisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Suðurlands
Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
Fasteignasala Suðurlands

Fasteignasala Suðurlands

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
phone
img

Guðbjörg Heimisdóttir

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
Fasteignasala Suðurlands

Fasteignasala Suðurlands

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
phone

Guðbjörg Heimisdóttir

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn