Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Vista
sumarhús

Ártún 30

806 Selfoss

78.800.000 kr.

676.395 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2538033

Fasteignamat

40.700.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
116,5 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fjölskylduvæn náttúruparadís – vandað heilsárshús í Reykjaskógi
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna til sölu Ártún 30 í Reykjaskógi.


Aðeins rúman klukkutíma frá Reykjavík og 14 mínútna akstur frá Laugarvatni stendur þetta einstaklega fallega hannaða heilsárshús í hjarta Gullna hringsins. Hér sameinast kyrrð náttúrunnar og vönduð bygging í eign sem hentar jafnt sem frístundahús eða heilsársbúsetu.

Nánari upplýsingar veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is 

Húsið er 116,5 fm á einni hæð með 33,7 fm viðarpalli.
Afhent fullbúið með helstu húsgögnum – tilbúið til notkunar frá fyrsta degi.

Húsið sjálft
Húsið er íslensk hönnun, teiknað af Ívari Haukssyni og framleitt af Nordroof Ísland. Byggt samkvæmt íslenskum stöðlum og hannað með heilsársnýtingu í huga.

Komið er inn í forstofu með fataskápum og parketi á gólfi.
Inn af forstofu er þvottahús með innréttingu, vaski og auka salerni – þvottavél og þurrkari fylgja.
Í húsinu eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, í hjónaherbergi er góður fataskápur. Eitt herbergið (16,8 fm) er sérstaklega rúmgott og hentar vel sem hjónasvíta eða rúmgóð gestaaðstaða.
Stofan er björt og opin með fallegu flæði inn í eldhús og út á rúmgóðan viðarpall – fullkomið rými fyrir samveru og notalegar stundir allt árið um kring.
Eldhúsið er sérlega fallegt með graphite gráum innréttingum, viðarborðplötu og ljósgrárri eyju með vínkæli.
Vönduð tæki fylgja: ísskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn og helluborð með innbyggðri viftu.
Baðherbergið er flísalagt með walk-in sturtu, upphengdu salerni og vandaðri innréttingu.

Aðstaða og búnaður
-  Gólfhiti í öllum rýmum
-  Ál-tré gluggar og hurðir (RAL 7016)
-  Bræddur tvöfaldur þakpappi
-  Lagnaleið fyrir heitan pott
-  Lagnaleið fyrir rafhleðslu
-  Steyptur sökkull og grófjafnað bílaplan
-  Lóð er hægt að kaupa eða leigja.

Þetta er vel hönnuð eign þar sem gæði, notagildi og fallegt umhverfi fara saman.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. 
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 

 

Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone