Lýsing
Í einkasölu bjarta og rúmgóða 133,5 fm. 3ja–4ra herbergja endaíbúð með gluggum í þrjár áttir, suðursvölum með fallegu útsýni þarf af er 25,9 fm góður bílskúr. Um er að ræða einstaklega bjarta eign með gluggum í þrjár áttir, suðursvölum með fallegu útsýni og sveigjanlegu skipulagi þar sem auðvelt er að útbúa þriðja svefnherbergið á ný. Eignin stendur hátt og nýtur því góðrar birtu og útsýnis, en gengið er upp tröppur utanhúss að inngangi og þaðan upp tvær hæðir í stigagangi.
Eignin Suðurhvammur 5, 220 Hafnarfjörður, ásamt öllu sem henni fylgir og fylgja ber að engu undanskildu, þ.m.t. tilheyrandi lóðarréttindi. Fastanúmer eignar: 207-9873.
Ásett verð: 74.500.000 kr.
ATH: Eignin getur verið laus fljótlega.
"Smelltu hér til að skoða myndband um eignina"
*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*
Sölupunktar eignar:
• Björt endaíbúð með gluggum í þrjár áttir.
• Suðursvalir með fallegu útsýni.
• Sveigjanlegt skipulag með möguleika á 3. svefnherbergi.
• Rúmgóður 25,9 fm bílskúr.
• Góð staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu og útivist.
Eignin skiptist í:
Forstofu, stofu, borðstofu, eldhús með borðkrók, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi, svalir, sérgeymslu og bílskúr með auka geymslu í enda bílskúr.
Nánari lýsing:
Forstofa:
Forstofa með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi og stórum gluggum sem hleypa inn mikilli birtu. Úr stofu er útgengt á suðursvalir með fallegu útsýni. Núverandi skipulag býður upp á rúmgott alrými, en auðvelt er að útbúa þriðja svefnherbergið á ný þar sem borðstofan er í dag.
Eldhús: Bjart eldhús með snyrtilegri innréttingu, efri og neðri skápum, flísum á milli skápa og góðri vinnuaðstöðu. Rúmgóður borðkrókur er við glugga með fallegu útsýni yfir höfnina.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og góðum skápum.
Svefnherbergi: Gott herbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með flísalögðu gólfi, eldri innréttingu með efri og neðri skápum, tengi fyrir þvottavél og baðkari með sturtuaðstöðu.
Svalir: Góðar suðursvalir með fallegu útsýni.
Geymsla: Sérgeymsla á jarðhæð, 6,2 fm, með hillum og máluðu gólfi.
Sameign: Sameignin er mjög snyrtileg. Á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð er með sértengi, ásamt þurrkherbergi og sameiginlegri hjólaaðstöðu.
Aðkoma: Athygli er vakin á því að gengið er upp tröppur utanhúss að inngangi hússins og þaðan ern gengið upp tvær hæðir innan stigagangsins að íbúðinni. Stutt er í helstu þjónustu, verslanir, skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og sundlaug.
Staðsetning:
Staðsetning eignarinnar er mjög góð á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í næsta nágrenni eru skólar, leikskólar, verslanir, íþróttaaðstaða og sundlaug, auk þess sem fallegar göngu- og útivistarleiðir eru skammt undan.
Hér er því um að ræða bjarta og rúmgóða eign á góðum stað þar sem þægindi, þjónusta og útivist fara vel saman.
Framkvæmdir á húsinu á síðustu árum:
Árið 2023 var húsið múrviðgert og málað að utan.
Árið 2022 var skipt um glugga og svalahurð og gleri skipt út á norðurhlið hússins.
Árið 2022 var sett upp nýtt mynddyrasímakerfi.
Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala, í síma 661 7788 eða á netfanginu bo@stofnfasteignasala.is.
Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.