Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
fjölbýlishús

Hnjúkamói 8

815 Þorlákshöfn

55.500.000 kr.

677.656 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2525185

Fasteignamat

48.850.000 kr.

Brunabótamat

52.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2024
svg
81,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hólmar Björn Sigþórsson löggildur fasteignasala, Ragnheiður Árnadóttir löggildur fasteignasali og Helgafell fasteignasala og kynna í einkasölu Hnjúkamóa 8, íbúð 201 íbúð, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða nýlega og fallega 3ja herbergja endaíbúð á 2 hæð með sérinngang í Móabyggð sem staðsett er miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í alla almenna þjónustu og útivist og ýmisskonar afþreyingu. Birt stærð eignar er 81.9 fm og þar af er íbúðarhluti 75.2 fm og geymsla 6.7 fm samkvæmt skráningu HMS.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu / borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi / þvottaherbergi og geymsla sem staðsett er í sameign.

Nánari lýsing:
Anddyri:  Með góðum góðum fataskáp, parket á gólfi. 
Stofa: Í alrými með eldhúsi, rúmgóð, útgengt er út á 7,8 fm vestursvalir, parket á gólfi. 
Eldhús: Í alrými með stofu, með HTH innréttingu, AEG keramik helluborð og bakaraofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott með hvítum HTH fataskápum, parket á gólfi
Svefnherbergi:  Gott með hvítum HTH fataskáp, parket á gólfi. 
Baðherbergi / þvottaherbergi: Með fallegri baðinnrétting með handlaug í borði, walk in sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, flísalagt gólf og hluti veggja. Innrétting og tengi fyrir þvottavélar og þurrkara.  
Sérgeymsla:  6,7 fm sérgeymsla (merkt 205) er í sameiginlegu geymslurými á efri hæð hússins. 
Bílastæði: Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af einu bílastæði á sameiginlegri bílastæðalóð. Lagnaleið fyrir rafhleðslustöðvar liggur í stæðið og er komin staur fyrir rafhleðslustöð. 
Staðsetning:
Smellið hér. 

Nánar um húsið.
Hnjúkamói er átta íbúða tvílyft hús.  Allir útveggir ásamt berandi innveggjum og milligólf eru staðsteypt. Gólfplötur milli íbúða eru staðsteyptar einnig eru stigar, svalir og svalagangar staðsteypt eða steypueiningar með endanlegu yfirborði. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með smábáru og sléttri málmklæðningu að hluta. Þak er viðsnúið með pvc dúk. Á hvorri hæð eru fjórar íbúðir og fjórar geymslur ásamt sameiginlegu tæknirými. Tveir stigar liggja upp á efri hæð.

Falleg nýleg eign - Tilvalin fyrstu kaup - Mjög góð staðsetning miðsvæðis í Þorlákshöfn - Eign sem vert er að skoða. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita Ragnheiður Árnadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 697 6288 / ragnheidur@helgafellfasteignasala.is og Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 / holmar@helgafellfasteignasala.is. 

Þorlákshöfn:

Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Hólmar Björn Sigþórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. des. 2023
2.370.000 kr.
49.800.000 kr.
81.9 m²
608.059 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík