Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Úlfar Þór Davíðsson
Ingimar Ingimarsson
Stefán Jóhann Ólafsson
Brandur Gunnarsson
Davíð Ólafsson
Gunnlaugur Þráinsson
Böðvar Sigurbjörnsson
Börkur Hrafnsson
Einar Pálsson
María Mjöll Guðmundsdóttir
Victor Levi Ricciardi Ferrua
Reynir Erlingsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1980
svg
244,4 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 9. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing


Borg fasteignasala kynnir: Fallegt einbýlishús á einni hæð við Lækjarás í Reykjavík. Húsið stendur innst í botnlanga við opin græn svæði sem tengjast Elliðaárdalnum og útsýni er yfir Esjuna.
Í húsinu eru 4 svefnherbergi, tvö baðherbergi tvær stofur og stór bílskúr. Húsið er mikið endurnýjað og hefur verið vel við haldið.


Nánari lýsing:
Anddyri:
Mjög rúmgott anddyri með flísum á gólfi og gólfhita. Fataskápar upp í loft og skilrúm við fatahengi.
Baðherbergi: Við anddyri er baðherbergi með sturtu og gólfhita. Við baðherbergi er rennihurð fyrir lítilli geymslu.
Hol: Úr anddyri er komið inn í rúmgott hol/stofu með parketi á gólfi. Steyptur arinn er í rýminu og eru gólfflísar þar fyrir framan.
Eldhús: Stórt eldhús með korkflísum á gólfi. Sérsmíðuð viðarinnrétting með miklu skúffu- og skápaplássi. Stór bogagluggi er í eldhúsi með fallegu útsýni til fjalla.
Þvottahús: Inn af eldhúsinu er rúmgott þvottahús með flísum á gólfi og gólfhita. Gott pláss fyrir snúrur og fatahengi er fyrir útiföt. Hægt er að ganga beint inn í þvottahúsið að utan.
Stofur: Við eldhúsið er borðstofa sem er notuð sem vinnurými í dag. Úr borðstofu eru tvær tröppur upp að aðal stofupallinum. Stórir gluggar og fallegt útsýni vestur og norður yfir Akrafjall og Esjuna.
Svefnherbergi: Á sér svefnherbergisgangi eru þrjú svefnherbergi og eitt stórt hjónaherbergi með stórum innbyggðum skápum.
Baðherbergi: Nýlega uppgert (2019) baðherbergi með opinni sturtu, japönsku setbaðkari og gólfhita. Heitur veggur við sturtuklefa virkar eins og innbyggður haldklæðaofn. Upphengt salerni og baðinnrétting með Corian borðplötu.
Bílskúr: Tvöfaldur bílskur þar sem önnur hurðin er tengd rafmagnsopnara. Rafkerfi er 3ja fasa og búið er að setja upp rafhleðslustöð. Bílskúrinn er skráður 41,3m².
Við innkeyrslu er pláss fyrir allt að 4 bíla. Búið er að helluleggja lóðina að hluta meðfram norðurhlið hússins þar sem hægt er að geyma ferðavagna ef þörf krefur. Svæðið er búið snjóbræðslu en hún er ekki tengd.

Búið er að fóðra og endurnýja frárennslislagnir undir húsinu að hluta og skipta um neysluvatnslagnir að mestu leyti. Settur var upp varmaskiptir fyrir neysluvatn 2019. Þak var endurnýjað 2010.

Nágrenni: Sundlaug Árbæjar og íþróttamannvirki Fylkis í brekkufætinum, matvöruverslun í um 700 m fjarlægð, leikskóli og leikvöllur í göngufæri, náttúra Elliðaárdals, Rauðavatn, Hólmsheiði og hesthúsahverfi í Víðidal að ógleymdri Heiðmörk, allt í næsta nágrenni. Góðar göngu- og hjólaleiðir allt í kring.

Upplýsingar veitir Davíð Ólafsson fasteignasali í síma 897-1533 eða david@fastborgi.is

img
Davíð Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Borg Fasteignasala
Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone
img

Davíð Ólafsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone

Davíð Ólafsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík