Lýsing
Miklaborg kynnir: Mjög fallega og vel skipulagða íbúð með sérinngangi frá svölum í góðu lyftuhúsi. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu.
Íbúðin skiptist í stofu sem er opin í vel búið eldhús, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi innan íbúðar. Útgengi er frá stofu og baðherbergi á rúmgóðar suðursvalir.
Í kjallara er sérgeymsla og stæði í bílageymslu.
Nánari upplýsingar veita Viðar Böðvarsson, sími: 6941401, netfang: vidar@miklaborg.is og Rakel Viðarsdóttir s. 6990044, netfang rakel@miklaborg.is
Anddyri með flisum og fataskáp. Eldhús er með fallegri innréttingu með eyju, það er með keramikhelluborði og bakarofni og háfi.
Eldhúsið er opið í bjarta og rúmgóða stofu sem nýtist sem stofa og borðstofa gengt er frá henni á svalir sem eru meðfram allri íbúðinni. Parket er í eldhúsi og stofu.
Tvö parketlögð svefnherbergi með fataskápum eru í íbúðinni.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari með sturtuhaus. Frá baðherberginu er útgengt á svalir.
Þvottaherbergi með geymsluaðstöðu er innan íbúðar.
Í kjallara fylgir sérgeymsla og stæði í bílageymslu.
Góð íbúð á vinsælum stað í Norðlingaholtinu. Stutt er í leik- og grunnskóla og helstu þjónustu. Fallegar nátturúperlur eins og t.d. Heiðmörk, Elliðavatn og Rauðavatn eru í göngufæri.
Nánari upplýsingar veita Viðar Böðvarsson, sími: 6941401, netfang: vidar@miklaborg.is og Rakel Viðarsdóttir s. 6990044, netfang rakel@miklaborg.is