Lýsing
Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson, löggiltur fasteigna- og skipasali kynna, Bragagötu 25:
Falleg rishæð með einstaklega rúmgóðum og sólríkum svölum með útsýni, í húsi byggðu 1985. Íbúðin er skráð sem þriggja herbergja en er núna með einu svefnherbergi. Möguleiki er að bæta við herbergi samkvæmt teikningum. Gólfflötur íbúðarinnar er mun meiri en uppgefnir fermetrar. Mjög góð lofthæð í mæni.
Nánari lýsing:
Stigagangur: Komið er inn í endurnýjaðan stigagang sem er sameiginlegur með miðhæð. Rúmgóður stigapallur með glugga er fyrir framan dyr inn í íbúð á hæð.
Eldhús: Eldhús með glugga til vesturs. Tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa: Falleg stofa með útgengi að stórum svölum með útsýni.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með glugga. Tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi: Með glugga til austurs og fataskápum.
Opið rými (herbergi II): Við hlið eldhúss er rými sem mögulegt að breyta í svefnherbergi samkvæmt teikningum.
Geymsla: Staðsett við inngang á jarðhæð. 5,1 fm.
Hjólageymsla: Sameiginleg hjólageymsla með aðgengi bakatil við hús.
Frábærlega staðsett rishæð á rólegum stað í miðborginni með einstökum útsýnissvölum.
Nánari upplýsingar veitir Daði Runólfsson, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 698-1164, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til dr@gimli.is
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...