Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
parhús

Bjarkarheiði 15

810 Hveragerði

124.900.000 kr.

704.059 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2254801

Fasteignamat

96.500.000 kr.

Brunabótamat

90.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2002
svg
177,4 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu Bjarkarheiði 15, 810 Hveragerði.
Fallegt parhús, miðsvæðis í Hveragerði en þetta er eign með mikla möguleika.
Eignin er 177,4 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin er skráð 137,0 m² og bílskúr 40,4 m² en auk þess er 137m² kjallari undir allri eigninni ( óskráðir fm )
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofa, sjónvarpshol, tvö baðherbergi, þvottahús, þrjú svefnherbergi og bílskúr.
Þá eru tvö svefnherbergi, geymsla og gríðar stórt alrými í kjallaranum sem í dag er nýtt sem leik/skrifstofurými.
Húsið er staðsett innst í botnlanga.


Sjá staðsetningu hér:

Komið er inn í opna og bjarta forstofu sem leiðir mann beint inn í alrýmið. Forstofa er flísalögð.
Frá forstofu er gengið inn í alrýmið en þar er stofa, borðstofa og eldhús.
Eldhús með góðu vinnuplássi, innrétting úr kirsuberjavið, bakarofn í vinnuhæð, uppþvottavél og gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp.
Gler-sólskáli með útgengi á aflokaða timburverönd er frá borðstofu.
Stofan er björt og rúmgóð en hlaðinn veggur aðskilur stofu frá holi.
Hjónaherbergi með gólfsíðum gluggum og fataskáp. Parket á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö á aðalhæð. Bæði herbergin rúmgóð með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf & gólf. Þar er innrétting með handlaug, innbyggð blöndunartæki, "walk-in" sturta, baðkar og upphengt wc.
Innangengt er í bílskúr en hann er með rafnúinni hurðaropnun. Inn af bílskúr er nýlegt baðherbergi og þvottahús. Flísar á gólfi, innrétting með handlaug og plássi fyrir þvottavél og þurkara, handklæðaofn, upphengt wc og "walk-in" sturta. Frá bílskúr er einnig gönguhurð út á timburverönd og pottasvæði á baklóð.
Kjallari er undir allri eigninni. Þar er í dag tvö herbergi og eitt lagnaherbergi/geymsla. Einnig er þar stórt alrými sem í dag er nýtt sem leik-og vinnuherbergi en þetta svæði bíður upp á mikla möguleika.
Loftræsting er í kjallara en 2,3 m. lofthæð er þar og gengið er niður í kjallara úr stofu.
Aflokuð timburverönd er á baklóð en þar er heitur pottur og skjólgott sólarsvæði.
Gólfefni eru flísar og votrýmum og holi, parket á alrými, svefnherbergjum og kjallara.
Húsið er byggt úr timbri árið 2002 það er klætt að utan með liggjandi bárujárni auk standandi timburklæðningar, aluzinhúðað bárujárn er á þaki. Húsið er mjög bjart og rúmgott en gluggar eru efst í veggjum allan hringinn í húsinu auk þess sem gluggar eru í turni í miðjunni. Loft eru upptekin klædd með ljósum viðarþiljum. Óbein lýsing er í húsinu hönnuð af Lumex. Hitalagnir eru í gólfum með stýringum.
Bílaplan er hellulagt.

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. feb. 2016
28.300.000 kr.
37.500.000 kr.
177.4 m²
211.387 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone