Opið hús: Nýbýlavegur 10c, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 02 04 07. Eignin verður sýnd laugardaginn 11. apríl 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:20.
Lýsing
Bókið skoðun hjá Jasoni, íbúðin er laus við kaupsamning.
Stutt lýsing: Falleg 3ja herbergja íbúð á 4. hæð (407) , samtals 84,7 fm. Lyfta. Bílastæði. Sérinngangur af svalagangi.
Eignin skiptist í forstofu, 2 rúmgóð svefnherbergi með fataskápum, eldhús og stofu í opnu rými með suðursvölum, baðherbergi og sér þvotthús. Sérgeymsla er að stærðinni 6,4 fm og er innaf stæðinu sem er í litlum 6 bíla lokaðri geymslu sem er keyrt inn af jarðhæð.
Nánari lýsing:
407 íbúð við Nýbýlaveg 10 C í lyftuhúsi byggt af JÁVERK . Íbúðin er á fjórðu hæð merkt 04-07. Fallegar innréttingar frá HTH, innbyggð uppþvottavél fylgir og AEG eldhústæki. Stæði í bílgeymslu fylgir eigninni. Húsið er álklætt og er leyfi til að loka svölum. Íbúðin er laus við kaupsamning.
Eigninni fylgir stæði í bílageymslu merkt 02B21.
Gengið af svalagangi í íbúð, glæsilegt útsýni þaðan til norðurs til fjalla.
Forstofa með flísum og fataskáp. Þvottahús með flísum og opnanlegum glugga. 2 svefnherbergi með parketi og fataskáp, í aðalsvefnherbergi eru fleiri fataskápar. Stofa og eldhús eru í sameiginlegu rými með parketi á gólfi. Gengið er út á 6,6 fm suðursvalir frá stofu. Baðherbergið er flísalagt á gólfi og veggjum. Innrétting er við vask. Flísalögð sturta með glervegg.
Húsið var byggt árið 2020 af JÁVERK . Við hönnun hússins var tekið mið af því að lágmarka viðhaldið. Húsið er einangrað að utan, klætt með sléttu og báruðu áli og gluggar eru ál-tré. Innréttingar og eldhústæki frá Ormson - HTH innréttingar. Flísar á baðherbergjum frá Álfaborg og innihurðir frá Parka.
Húsið er staðsett miðsvæðis á höfðborgarsvæðinu. Í götunni er að finna Bónus, bakarí, veitingastaði, apótek ásamt annarri þjónustu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.